Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Síða 22

Kirkjuritið - 01.04.1961, Síða 22
164 Kirkjuritið um þvingaðir til að leggja hér meira af mörkum, en sæmilegt sé, skal þessa getið að lokum: Kirkjugjöld hafa alltaf verið ótrúlega lág. Síðustu árin hefur hámark þeirra verið um 67 krónur á hvern einstakan safnaðarmeðlim. A þinginu í vetur var það hækkað upp í 100 krónur. En jafnframt kom skýrt í ljós, að háttvirtir al- þingismenn gættu þess vandlega að ekki yrðu nú safnaðar- menn skaðlega rúnir, þótt þeir hefðu þörf nýrrar kirkju. Frá því laust eftir aldamót var það ákvæði um fjöritíu ár í lögum, eins og ég hefi einu sinni áður vikið að, — að þegar þess væri sérstök þörf, mætti safnaðarfundur samþykkja að hækka kirkjugjöldin lítillega, enda kæmi líka samþykki hér- aðsfundar til. Engin dæmi eru þess, að þetta hafi verið mis- notað, né valdið nokkrum umkvörtunum. Og sannast sagt hafa einstöku söfnuðir fylgt þessu fram til þessa. En það reyndist útilokað að fá þetta ákvæði aftur tekið upp í lögin á síðasta þingi. Enda treystist Kirkjuþingið heldur ekki til að gera um það ályktun. En er samt ekki næstum því óskiljanlegt, að söfnuðum sé með þessu móti bannað að fara þessa leið, sem mörgum hefur gefizt vel? Er meira að segja ekki allt að því útilokað, að sjálft Alþingi vekti jafn skelegglega yfir öllum öðrum félags- skap í landinu? Ólíkt eru félagsgjöldin a.m.k. hærri í mörg- um félögum, sem ég hefi þekkt til en 67-100 kr. nú á dögum. Og samt engar skorður við því settar að þau séu hækkuð, ef það er samþykkt á aðalfundum samkvæmt lögum sjálfs félagsins. Þótt enn standi að vísu heimild um, að leyfa hækkun kirkjugjalda í hlutfalli við útsvör manna, — sem og var jafn- framt í hinum eldri lögum — vík ég ekki frá því, að það dæmi sem hér er nefnt sýnir hvorki sérlega viðsýni né neinn brennandi áhuga fyrir kirkjubyggingum. Og á meðan sá andi er ríkjandi, sem það lýsir, geta áreiðanlega allir sofið rólega þess vegna, að það verður sem betur fer unnt að reisa eins mörg sjúkrahús og líknarhæli í landinu og þörf krefur — hvað sem öllum kirkjubyggingum líður.

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.