Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Page 31

Kirkjuritið - 01.04.1961, Page 31
K i r k j u r i t i ð 173 47. Hver er hin innri og andlega gjöf heilagrar kvöldmáltíSar? Hin innri og andlega gjöf hennar er líkami og blóð Krists, sem er sannlega og á andlegan hátt af honum gefið og meðtekið af hinum trúu. 48. HvaS er átt viS meS því aS meStaka líkama Krists og hlóS? Það, að meðtaka líkama Krists og blóð, þýðir, að meðtaka líf Krists sjálfs, sem var krossfestur, reis síðan upp, og er nú lifandi að eilífu. 49. HvaSa ávinning höfum vér af heilagri kvöldmáltíS? Ávinningur vor af henni er sá, að samfélag vort við Krist og kirkju hans styrkist, vér öðlumst fyrirgefningu syndanna og hún er oss líkamlee og andleg næring fyrir hið eilífa líf. ■50. Hvers er krafist af þeim, sem ganga til altaris? Af þeim, sem ganga til altaris, er þess krafist, að þeir hafi lif- andi trú á náð Guðs sakir Jesú Krists, og minnist þakklátum huga dauða hans og upprisu. Að þeir iðrist sannarlega synda sinna, hyggi á að lifa nýju lífi, og beri kærleika í brjósti til allra manna. 5J. HvaS er heilög vígsla? Heilög vígsla er sú þjónustugjörð, þegar þeir, sem skipaðir eru biskupar, prestar eða djáknar, hljóta embættisvald og náð Heilags Anda af hálfu Drottins Jesú Krists sakir fyrirbæna og handayfir- lagningar. 52. HvaS er heilagt hjónaband? Heilagt hjónaband kallast það, þegar maður og kona verða eitt, sem eiginmaður og eiginkona í ævilöngu samfélagi. 53. Hver er hin kirkjulega þjónusta varSandi hjónabandiS? Hin kirkjulega þjónusta varðandi hjónabandið felst í því að blessa manninn og konuna við hjónavígsluna, svo að þau sam- eiginlega öðlist náð Guðs. Og til þess að þau fyrir þær sakir lifi réttilega samkvæmt þeim hvötum, sem hann hefur þeim í brjóst lagt og fullkomni ást sína hvort á öðru og þeim börnum, sem þau eignast á kristnu heimili. 54. HvaS er aflausnin? Aflausnin er athöfn, þar sem þeim er veitt fyrirgefning Guðs, er réttilega iðrast synda sinna og hafa játað þær ótilneyddir í á- heyrn sálusorgara síns í þeirri ætlun að bæta líferni sitt. 55. Hver er lœknisþjónustan? Með læknisþjónustunni veitist náð Guðs til lækningar anda, sálar og líkama, sem svar við trú og bæn. Stundum er handayfirlagning og smurning henni samfara. VI. Hin kristna von 56. Hver er sú von, sem kristinn maSur ber í brjósti? Kristinn maður lifir í öruggri von um endurkomu Krists, efsta dóm og upprisu til eilífs lífs.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.