Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 38
180 K i r k j u r i t i ð annarra vígðra húsa á íslandi. Og kvað eigi Gizzur biskup ísleifsson svo á, að í Skálholti skyldi ætíð biskupsstóll vera, meðan Island væri byggt og kristni mætti haldast? Skálholt á ekki að vera dauður minnisvarði fornrar frægð- ar. Þar á að vera lifandi brunnur andlegs lífs, svo sem áður var um aldir, — annað höfuðsetur kirkju og kristins dóms á íslandi. Hin andlega stétt hefur verið furðulega — mér liggur við að segja óhæfilega — tómlát um endurreisn bislcupsstól- anna á Hólum og í Skálholti. Og sjálft kirkjuþingið hefur brugðizt þarna skyldu sinni. Þetta er hörmulega farið. ,,Að fortíð skal hyggja er framtíð skal byggja“, segir Einar Ben. Biskupsdóm ber að endurreisa á báðum hinum fornu setrum. Það er heilög skylda lítillar þjóðar, sem á allt undir því, að hún geymi sem vendilegast andlegra erfða, að hún missi aldrei sjónar á fortíð sinni og sögu. Endurreisn biskupsstólanna er tilfinningamál. Það er víst satt. En eiga þá tilfinningarnar eigi nokkurn rétt á sér? Þar fyrir utan er það bjargföst trú mín, að endurreisn hinna fornu biskupsstóla mundi reynast Guðs kristni í landinu til eflingar og ómetanlegrar blessunar. Gisli Magnússon. Vegurinn Gleði mín lifði í ljóði ljóðið mitt breyttist í veg. Á veginum mætti ég manni og maðurinn það var ég. Hann lifði við daglanga drauma draumarnir urðu að trú er gaf mér þá vakandi vissu að vegurinn minn ert þú. Ulfnr Ragnarsson, lœknir.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.