Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 44

Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 44
186 K i r k j u r i t i ð „fátækt andans“ og ,,hugleiðingin“ veitt þeim þrek til að verða við öllum neyðarkröfum náunga síns. Og einnig til að taka með undirgefni hverju, sem örlögin létu þeim að hönd- um bera, þegar þeir gegndu kalli skyldunnar, eins og þeim skildist það bezt. I þeirra huga var kærleikurinn — þetta marg misnotaða og misskilda orð — ósköp einfaldlega óumræðilegur afl- gjafi, ef þeir lifðu sönnu fórnarlífi. Og það var þeim alveg sjálfgefið, að þessum kærleika fylgdi hiklaus hlýðni við skylduna og skilyrðislaus viðtaka hvers, sem lífið veitti, hvort heldur það færði þeim sjálfum erfiði og þjáningu — eða þá hamingju. Ég geng þess ekki dulinn, að þessar uppgötvanir mínar á lögmálum hins innra lífs og starfsskyldunni hafa ekki misst gildi sitt. Dag Hammarskjöld. Ég trúi því af alhug, að Hann, hinn réttláti, og uppspretta réttlæt- isins, hafi skapað mig og allt annað i ákveðnum tilgangi. Hann gæddi mig broti af anda sínum mér til leiðsagnar og styrks í mínum mann- lega veikleika. Ég er myndaður í líkingu hans. Ég er þjónn hans, og tilgangur lífs míns hlýtur að vera sá, að ég opinberi gæzku hans og góðvilja, hvar sem ég fer og hvað sem ég aðhefst. — Sir Basil Henrique. Það að afneita tilvist Guðs er sama og halda því fram, að ekkert skipti neinu máli að lokum. Ef maðurinn væri ekki að einhverju leyti frjáls og ábyrgur gerða sinna væri öll hugsun og siðferðileg hegðun einskær hégómi. Og ef dauðinn bindi endi á líf einstaklingsins væri mannlífið tilgangslaus þáttur í meiningarlausri sögu efnisheimsins. — B. C. Butler, ábóti. j

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.