Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 45

Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 45
Biblíumyndasjóður barna INNGANGSORÐ Á 85 ára afmæli mínu, 1. 1. 1961, afhenti stjórn Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund mér meðal annars: 2 fimm þús- und króna skuldabréf frá Byggingarsamvinnufélagi prentara í Reykjavík, að ég gæti varið vöxtum þeirra til að gleðja ,,börnin í Grímsey og aðra þá, sem ég teldi ástæðu til að gleðja“, en að öllu leyti var mér falið að setja sjóðnum skipu- lagsskrá. Skuldabréf þessi eru gefin út í september 1959 og ársvext- ir 7%. Eiga þeir að greiðast 15. desember hvert ár. Bréfin eru hluti af láni fyrrgreinds félags, og á lánið að greiðast með jöfnum afborgunum við útdrátt bréfanna á 15 árum eins og nánar er frá sagt í bréfunum sjálfum. SKIPULAGSSKRÁIN 1. grein Sjóðurinn heitir Biblíumyndasjóður barna í fámennum sóknum. 2. grein Höfuðstólinn — tíu þúsund krónur — má ekki skerða. Þegar skulda- bréfin verða greidd, ber að leggja andvirði þeirra í Söfnunarsjóð Is- lands eða í 10 ára sparisjóðsbók Landsbankans. Sama er að segja um gjafir sem sjóðnum kunna að berast, enda minni Kirkjuritið árlega á hann, 3. grein Af ársvöxtum 1960 skal 500 krónum varið til að stofna bókasafn Grímseyjar-prestakalls með því að greiða þann fjórða hluta bókaverðs, sem prestur þar mundi annars greiða. — En Ríkissjóður greiðir eins °g lög mæla fyrir % hluta verðs þeirra bóka, sem fara í bókasöfn prestakalla. Bækur þessar skulu valdar í samráði við biskup íslands °g væntanlegan djákna eða prest í Grímsey.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.