Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 46

Kirkjuritið - 01.04.1961, Qupperneq 46
188 Kirkjuritið Þeim 200 krónum, sem þá eru eftir, skal varið á sama hátt og segir í 5. grein um vexti komandi ára, eftir því sem til hrekkur. 4. grein Biskup íslands varðveitir sjóðinn og hefir umsjá með, í samráði við æskulýðsráðsfulltrúa Þjóðkirkju Islands, að vöxtum hans sé varið sam- kvæmt því sem segir hér á eftir. 5. grein I árslok 1961 — og upp frá því í hver árslok — skal verja öllum árs- vöxtum sjóðsins til að kaupa sunnudagsskóla-myndir handa börnum eins og talið er í 6. grein. Sé fé fyrir hendi skal jafnframt senda ár- lega 1 eða 2 biblíumyndakefli (eða ,,myndarúllur“) hverjum barna- skóla á þessum sömu stöðum og innheftan árgang af 1 eða 2 kristi- legum barnablöðum. 6. grein Við úthlutun skulu börn á þessum stöðum og í þessari röð, sitja fyrir, ef þau hafa ekki þegar fengið umrædda „Ljósgeisla“ um hendur Sunnudagaskólakennara. í Grímsey, Hóla- Viðvikur-, Hvamms- og Ketusóknum í Skagafjarð- arprófastsdæmi, Langholtssókn í Meðallandi, Öræfum, Flatey 'á Skjálf- anda, Flateyjar-, Gufudals-, Múla- og Brjánslækjarsóknum í Barða- strandarprófastsdæmi, Breiðabólstaðar-prestakalli á Skógaströnd, Mjóa- firði eystra, Hólsfjöllum og Jökuldal. Heimilt er, ef biskup mælir með, að þessar sendingar falli niður ann- aðhvort ár — til barna á síðari helming þessara staða og aðrar fámenn- ar sóknir látnar njóta þess. Reykjavik, 6. febrúar 1961. Sigurbjörn Á. Gíslason (sign) Maður nokkur segir svo frá: Ég heimsótti, ásamt vini mínum, munka- klaustur ekki alls fyrir löngu. Munkurinn, sem var til leiðsagnar, fékk okkur smáupplýsingarit um regluna. Vinur minn blaðaði í því og gapti svo af undrun. ..Þetta hlýtur að vera misskilningur“, hrópaði hann upp. — „Hér stendur að munkarnir fari á fætur klukkan 3 á nóttunni“. Munkurinn brosti ljúfmannlega. „Það er áreiðanlega misskilningur", svaraði hann, „en þar fyrir er það satt“. Háskólakennari átti viðræður við franskan munk, sem harmaði að regla sín væri ekki jafn fræg fyrir lærdómsiðkanir og Jesúítar né held- ur fyrir þagnarhald sitt og góðverk, sem Trappistarnir. „En“, bætti hann við, „hvað auðmýktina snertir, þá erum við fremstir".

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.