Kirkjuritið - 01.01.1962, Page 11
KIRKJURITIÐ
5
viljum vera þeim mepin, sem allt er öruggt og skuggalaust,
þeim megin, sem sannleikurinn er, vegurinn, lífið, Guð, einn
sannur GuS. Hinum megin er vitanlega um marga að velja,
en höfum vér ráð á því að gera tilraunir með þá, erum vér
menn til þess með reynslu og viðhorf samtíðariimar fyrir
augum? Það er eitt hásæti til, sem þú skalt aldrei sjá hrynja,
eitt nafn, sem aldrei mun blikna, einn, sem aldrei blekkir þig,
lieldur stendur við allt, öll sín lieit, Jesús Kristur. Það mun
eilífðin sanna.
En manninum er fengið það vald, að liann getur valið,
kosið, hverjum liann vill þjóna, kjörið sér átrúnaðargoð, valið
sér lífsskoðun eftir geðþótta, valið jafnvel milli lífs og dauða.
Hér kom í verzlanir fyrir jólin ný bók, sem lieitir: Á maS-
urinn framtíS?
Hún er eftir Bretann kunna, Bertrand Russell. Hann skoðar
þessa spurningu í Ijósi þróunarinnar í alþjóðamálum og í
vígbúnaði og er ekki bjartsýnn. Hann segir: „Ég veit ekki,
hvaða skelfingar kunna að vera framundan oss, en það getur
enginn efað, að nútímamaðurinn er dauðadæmd líftegund, ef
eittlivað stórlega róttækt gerist ekki“. Og hann segir ennfrem-
ur — og þau orð hefðu einhvern tíma ekki þótt líkleg í lians
munni: „Það er í hjörtum mannanna, sem meinið er fólgið.
Hin rammefldu skelfingartól, sem gerð liafa verið, eru ytri
merki illra livata. Engar aðstœSur knýja til styrjaldar nú,
hnúturinn er í liuga mannsins og lækningin er nýtt liugarfar“.
Það væri ákjósanlegra að geta komizt hjá því, að minna á
þessa geigvænlegu alvöru í ársbyrjun, en því miður horfir
ekki svo að liægt sé að segja: Friður og engin liætta. Ef spenn-
an slaknar ekki brestur boginn fyrr lieldur en síðar og sá
eldur losnar sem verður endalokin. Vér erum á tæpustu nöf,
það er því miður víst, en vér getum snúið við, og liver hugur,
sem vakir með Kristi, vakir í trú og bæn, í ugg og árvekni
lians kærleika og með frið lians í sjálfum sér, er sigur fyrir
mannkynið. Og það er ekki klerkur, lieldur Nóbels-verðlauna-
liafi í kjarnorkuvísindum, Artliur Compton, sem segir — og
hann er ekki einn um slíka skoðun í dag: „Vísindin hafa
skapað veröld, þar sem kristindómurinn er lífsnauðsyn“.
Gagnvart slíkum ummælum dettur sjálfsagt einliverjum í
hug: Er kristindómurinn ekki búinn að reyna sig, liefur ekki