Kirkjuritið - 01.01.1962, Síða 24

Kirkjuritið - 01.01.1962, Síða 24
KIRKJURITIÐ 18 fegurri og árangursríkari en annarra manna. Samt hefði liann ekki orð'ið það, sem liann varð, ef honum hefði ekki ungum hlotnazt sú náð, að öð’last trú á Guð, svo sanna og hreina, svo bjargfasta, að hún mótaði síðan allt líf lians og starf, öll orð hans og allar gerðir. Hann har samt ekki merki heitrar trúar sinnar hið vtra með sér, og hann fjölyrti ekki um hana. Hann var ekki eitt og trú hans annað. Hún var hluti af sjálfum hon- um, lífi lians og starfi. Ég lield, að liann hafi sjaldan talað um trú sína nema í ræðustól. En hann boðaði liana með því að vera eins og hann var. Hann hafði öðlazt svo djúpan frið í sál sína, svo örugga fótfestu í lífi og dauða, að á grundvelli lieilagrar trúar urðu persónutöfrar lians slíkir, að fyrr á öld- um hefði hann eflaust verið talinn helgur maður.----------- Þarna kemur fram óvenjulega skýr skilningur á gildi og mikilvægi trúarinnar. — Þetta er eins og vormerki. Mikill Islendingur Hannes Hafstein átti aldarafmæli 4. desember. Þess hefur verið minnzt á marga vegu að maklegleikum. Hannes var fyrsti innlendi ráðherrann >— og ef til vill áhrifamesti þjóðleiðtog- inn á þessari öld. Enginn stjórnmálaforingi vor hefur a. m. k. á því tímaskeiði verið glæstari — né dáðari. Ekki þarf hans vegna að halda minningu lians á lofti. Heldur til þess að oss verði ljóst, hvort vér metum hann sem skylt er og fylgjum stefnu hans eins og vert væri. Hann unni þjóð vorri. Frelsi hennar var honum lieilög hugsjón, sjálfstæði liennar höfuð baráttumálið. Þetta er ljósast af ættjarðarljóðum hans. Það logar í þeim heitur liugsjónaeldur, hugheil ættjarðarást. 1 vorvísum, sem tileinkaðar eru 17 júní 1911, segir um Jón Sigurðsson: Hans von er í blænum á vorin, lians vilji’ og starf er í gróandi lund. Sú var líka vafalaust ósk Hannesar sjálfs, að svo yrði um hann sjálfan. Vissnlega elskum vér landið enn — Islendingar. En viðliorf

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.