Kirkjuritið - 01.01.1962, Side 41

Kirkjuritið - 01.01.1962, Side 41
KIRKJURITIÐ 35 nokkurn veginn í réttu ljósi. Hér á lancli gerist þetta án nokk- urra átaka, en flóttafólkið í búðunum í Gieszen tjáði mér, að í sínu landi væru átökin orðið kveljandi, — svo kveljandi, að það kysi fremur að flýja land en búa lengur við þá þvingun, sem af þessu leiddi. Þeir, sem kváðust hafa flúið vegna atvinnubáttanna, voru fyrst og fremst bændur, sem ekki gátu fellt sig við hinn nýja samyrkjubúskap. Ég spurði, hvað þeir liefðu helzt út á liann að setja. Svörin voru yfirleitt á þá leið, sem ég hefði getað bugsað mér roskna, íslenzka bændur tala. — Þeir sögðu, að öll landamerki væru rifin niður, og bændurnir yrðu verka- menn á stóru samvrkjubúi, sem væri þannig skipulagt, að livert lieimili yrði algerlega ósjálfstætt. Bústjórarnir væru oftast ungir menn, sem kæmu beina leið úr einhverjum landbúnaðarskólanum, reynslulausir, og skildu bvorugir aðra, þeir né bændurnir gömlu, enda færi margt í bandaskolum. Einna verst væri það, að hverjum bónda, sem yrði meðlimur í samyrkjubúinu, væri skammtað úr bnefa, það sem bann fengi til eigin beimilis eða eigin umráða af búsafurðum. — Ég spurði, hvort bændurnir væru skyldugir til að vera með- limir. Nei, það væru þeir raunar ekki, en afleiðingarnar af því að standa utan við, gætu orðið alvarlegar. Þeir fengju ekki markað fyrir egg sín og mjólk, og hlytu fyrr eða síðar að flosna upp. Þó væri bitt jafnvel verra, að þeir væru aldrei látnir í friði fyrir áróðursmönnum liins nýja skipulags. Þeir befðu verið vaktir upp á nóttum, til að þjarka við þá. Þeir væru brýndir á því, að nú væru flestir aðrir orðnir með, og ekki stætt á því fyrir þá að greina sig frá bópnum. 1 sumum bændaþorpunum gyllu bátalarar svo að segja nótt og nýtan dag, og menn hefðu vfirleitt bvorki svefnfrið né vinnufrið, fyrr en þeir hefðu látið undan. — Því befðu þeir beldur kosið að liverfa brott og reyna á nýjan leik annars staðar. — Þannig var frásögn binna austur-þýzku bænda, sem ég ræddi við suður í Gieszen. Ég notaði tækifærið í veizlunni, sem ég gat um áðan, til að spyrja þingmanninn um samyrkjubúin, og sagði bonum, að ég gengi út frá því, að ríkisstjórnin vildi þjóðinni vel með stofnun binna stóru samyrkjubúa, en liins vegar lægi það í augum uppi, að einbver vandamál blytu að hafa komið í ljós.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.