Kirkjuritið - 01.01.1962, Side 46

Kirkjuritið - 01.01.1962, Side 46
40 KIRKJURITIÐ um samkvæmt leiðsögn andans, sem í honúm bjó, og kom þeim auglýsingum á framfæri í tíma og ótíma og ráðlagði lærisveinum að fara eins að. Nú ganga menn að öllu gruflandi. En hvernig fer, ef einstaklingar, prestar eða aðrir, eru svo bundnir af fyrirmælum og áætlunum, að þeir þverskallast við þeim breytingum, sem andinn kann að vilja gera? Þá þarf ekki lengi að bíða eftir rigor mortis, öruggustu einkenni um það, að dauðinn er kominn til skjalanna. Kvœði kemur næst í heftinu, stutt en ekki lítið, því að það er leiðsögn í andardrætti andans, listinni að biðja. Áberzl- an er lögð á trúnaðartraust, auðmýkt og Iilýðni við kær- leiksríkan föður. Segið mér nú, lærðir menn. Ég sá í bók, að hið gríska orð, sem á íslenzku er þýtt með „trú“, merkir trún- aðartraust. Er þetta rétt? Sé svo, er ekki vanþörf á að strika undir það með rauðu og kenna í guðfræðideildinni. Að fall- ast gagnrýnislaust á skoðanir á þá ekkert skylt við trú, þó að sumir boðendur vilji svo vera láta. KveSja norrama biskupafundarins þykir mér vel og kristi- lega orðuð. Já, þreytumst ekki að biðja. Fróðlegt væri að geta skyggnzt inn í bænalíf hér á landi. Hvað skyldu þeir vera margir, sem biðja án afláts? Hversu margir leita einveru til bæna að fyrirsögn og fyrirmynd Jesú? Eru þeir margir, sem biðja í anda og sannleika, eða er ónytjumælgi beiðingjanna algeneari? Mynd frá Afríku er brugðið upp af séra Jakob Jónssyni. Það er mynd af fólki, sem þekkir köllun sína — og lilýðir, mynd af hvítri konu, sem dansar í liópi svertingja af lífi og sál, og verður bara enn bvítari af því. Ekki væri ónýtt að eignast slíkan dans á Islandi, svo mörg sem ballhúsin eru. Að dansa liefur sinn tíma, að starfa hefur sinn tíma. Er það ekki? Allt liefur líma, nema bvíti maðurinn. „Guð bvíta mannsins er klukkan“. Klukkugoðið innblæs mönnum eirðarleysisandanum og kjör- orði bans: Ég má ekki vera að því. Það er alltaf verið að flýta sér til „nauðsynlegra starfa“ framhjá þurfandi mönnum og Guði. Breiður er sá vegur. En þarna í hinni svörtu Afríku fæð- ast hvítar bugsanir. „Trúboði af binni nýju gerð er maður, sem kann að taka skömmum, vera misskilinn, eiga á hættu að verða fyrir móðgunum, láta sér lynda, að litið sé niður á liann,

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.