Kirkjuritið - 01.09.1976, Side 41
Ist hann ritstjóri og ábyrgðarmaður nýs
Mrnarits — „JarSar". Þótt trausta ætti
hann samherja, var þetta vissulega
^ikið í fang færzt af félausum presti
1 afskekktu og örðugu prestakalli á
heimskrepputíð. „Jörð“ kom út í tveim
éföngum, ails 11 ár.
Séra Björn var settur prestur í Háls-
Þrestakalli í S.-Þingeyjarsýslu árið
1^45. Hlaut veitingu árið eftir. Aðkom-
an á Hálsi var slík, að raunar má
Se9ja að húsakostur fyrirfyndist eng-
lnn — annar en kirkjan! Með harð-
fyi9i tókst að fá staðinn húsaðan að
n!/ju. Vistlegt og hentugt íbúðarhús
reis á fornum þingstað við túnfótinn.
(h’inghóll). Þar nýtur sólar til muna
ierigur en á gamla bæjarstæðinu. Út-
sýni opnast austur um Ljósavatns-
skarð, allt til Mývatns-fjalla. Á Hálsi
séra Björn þýðingar merkra bóka,
skáldverka og myndlýstra fræðirita,
einkum fornsögulegs efnis. Fyrsta bók-
!n’ Egyptinn, kom út 1952 (Endurpr.
síðan 5 bækur, hin síðasta í 2
hindum (1961—62). Frumsamin verk
eru leikritið Á Garði (um Hafnarstúd-
enta) og Sveinn Framtíðarskáld (um
etinn skólabróður). Frumkvæði átti
®era Björn að ritverkinu „íslenzkar
J°smæður“, safnaði öllu efni 1. bindis
e9 nokkru af efni 2. bindis. Minningar
ans geymast í handritum, ýmist í
einni frásögn eða skáldsöguformi.
. Henn þjónaði Hálsprestakalli í 10
ar (1945—55). Lét þá aftur af prests-
aP- Á þeim 20 árum, sem þá voru
etir ævinnar, virtist hann heilsubetri,
enda sístarfandi, m. a. að kennslu
°9 Þýðingum. Um árabil (1960—65)
9®gndi hann nokkuð samfelldri bráða-
ir9ðaprestsþjónustu. (ísafjörður,
Möðruvellir í Hörgárdal, Seyðisfjörður
o. fl.). En höfuðviðfangsefni hans þessa
2 áratugi var mannfræði og fylgifög
hennar. Sökkti nann sér niður í lestur
um þessi efni, skrifaðist á við fræði-
menn og sendi frá sér prentaða bækl-
inga og ritgerðir, er hann þýddi á
dönsku. (Hann skrifaði dönsku af-
burðavel. Um íslenzkt ritmál hans má
e. t. v. segja, að oft beri það keim
af setningaskipun danskra og þýzkra
fræðirita. Áhrif frá vísindanámi Hafnar-
áranna?). Af bréfum má sjá, að kunnir
fræðimenn tóku athugunum hans vel.
Lætur hann eftir sig allmikið mann-
fræðihandrit, þvínær fullbúið til prent-
unar.
Hinn 29. júní kvæntist séra Björn
Guðríði Vigfúsdóttur frá Flögu í Skaft-
ártungu. Sambúðarárin urðu sem næst
49. Frú Guðríður andaðist hinn 12.
apríl 1973. Börn þeirra eru:
Ingibjörg RagnheiSur, gift Bjarna
Linnet fulltrúa, Hafnarfirði.
Vigfús, bókbandsmeistari, Akureyri,
kvæntur Elísabetu GuSmundsdóttur frá
Flatey, Skjálfanda.
SigríSur Sveinbjörg Pálina, sjúkra-
listiðjufræðingur, Reykjavík. Björn
hennar eru 4. Elzt þeirra er Guðríður
Ragnarsdóttir. Sigríður giftist Dieter
Roth listfræðingi. Slitu hjúskap.
Oddur, kennari og leikritaskáld,
Reykjavfk, kvæntur Borghildi Hilmars-
dóttur Thors.
Sigrún, leikkona, gift Ragnari
Björnssyni, dómorganista, Reykjavík.
Björn Oddsson var fjölgefinn maður
og fjölmenntaður. Áhugaefni hans að
sama skapi mörg. Nafn tímarits hans
boðaði áhuga fyrir öllu því, sem jarð-
neskt er og mannlegt. Hvað má þá
199