Syrpa - 01.10.1919, Blaðsíða 40
106
S Y R P A
FYRSTI KAPÍTULI.
Nýr liðsmaður.
Júlísólin skein Lrennandi heit á rykugar göturnar í Spurs
Corner. ÞaS var heitasti bletturinn í allri Jackson-sýslunni í
Missouri. Tveir menn sátu undir skuggsælu veggsvalaþaki fyrir
framan ofurlítið veitingahús, þar sem forsælan var nóg. Þeir
Iögðu hælana upp á handriðið, sem var umhverfis svalirnar^ og
virtust vera rólegir og ánægSir með lífitS. Annar var nokkutS
hærri vexti en hinn; hann var skegglaus og snareygur. Af lát-
bragði hans mátti ráSa, að hann væri að 'bíða eftir einhverjum;
að vísu var hann ekki órólegur, því hann stóð ekki á fótunum, en
hitt var sýnilegt að hann var að ibíða.
Félagi hans, sem hafði grá augu, er hann hálf-ligndi aftur,
virtist ekki vera að 'hugsa um neitt; hann hengdi niður höfuðið
og var rétt að sofna.
“Hann ætti að vera kominn, Frank,” sagði Jesse James —
þessir tveir menn voru hinir alræmdu bræður, útlagarnir, sem
fimtíu þúsund dollarar höfðu verið lagðir til höfuðs. Þeir sátu
þarna fyrir framan veitingahúsið eins og hverjir aðrir frjálsir menn
þrátt fyrir það þótt ekki væri meira um annað talað en hið djarf-
lega rán í St. Genevieve bankanum.
“Hann er líklega raggeit,” sagði Frank geispandi.
“Hann hefir orðið að yfirgelfa Indíánaland,” sagði Jesse
hlægjandi, “og ef við tökum ekki við honum, þá gerir eftirleitar-
flokkurinn það.”
“Eg hélt að þú kærðir þig ekki um að fá fleiri í flokkinn,”
sagði Frank og linaði ögn á beltinu, sem Ihann hafði utan um sig.
“Það er aðeins vegna þess að Comanche Tony bað mig þess
að eg tek við honum,” sagði Jesse.
Frank tók fæturnar ofan af ‘handriðinu og rétti úr sér.
Comanche Tony var vel þektur nautahirðir frá Texas, sem
hafði lent í klandur og farið víða um. Frank hafði ekki heyrt
hann nefndan á nafn langa lengi. Það var siður Jesses að segja
jafnvel ekki bróður sínum frá öllum leyndarmálum sínum. Sann-
leikurinn var sá, að honum hafði tekist að ræna og drepa í tuttugu
ár, vegna þess að hann trúði ekki nokkurri lifandi manneskju
fyrir öllu. Hann háfði séð marga félaga sína verða lögunum
að bráð vegna þess að þeir treystu kvenfólki; sjálfur treysti hann
engum til fulls.
“Hvað er með Tony?” spurði Frank.
“Hann gengur í lið með okkur,” sagði Jesse rólega; eg