Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Side 19

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Side 19
PRESTSKOSNINGIN í EHRENWOLMSÞORPI 113 gæti komizt eftir einhverju hjá þessari stúlku. Nú ákvað hann að fara kænlega að og fara krókaleið til þess að komast að sannleikanum. Honum datt ekki til hugar að spyrja strax um aðstoðarprest- inn, nei, guð sé oss næstur! Þannig ætl- aði hann ekki að fleipra því strax út úr sér. Fyrst talaði hann um akuryrkjuna, spurði um brauð- og smjörverð, um félög í þorpinu, skemmtanir, dans og annað slíkt. Einnig spurði hann um veitinga- húsið og fékk vitneskju um, að faðir stúlkunnar átti einnig búgarð með tíu kúm og fjórum hestum. Þegar Anton hafði talað um síðustu svínaslátrun, tók hann í sig kjark og tók nú að tala um aðstoðarpréstinn. Hann deplaði nú aug- anu blíðlega til ungfrúarinnar og spurði svo á beztu háþýzku, sem hann kunni: »Þekkið þér Hegewald aðstoðarprest?« Stúlkan reis á fætur, rjóð út undir eyru, og greip saumadót sitt með sér. Anton flýtti sér að bæta við: »Eg er nefnilega ókunnugur hér í þorpinu og þá spyr maöur um einn sem annan«. Hún gekk út úr herberginu, án þess að virða hann svars. Anton var ráðalaus. Hvað var eigin- lega að stúlkunni? Honum virtist hann hafa komið málinu svo kænlega fyrir. Af einhverju hafði henni þótt við hann. Hann varð að bæta fyrir það. Hann á- kvað með sjálfum sér að panta hálfa flösku af víni og hrópaði því: »Þjónn«! En nú kom stúlkan ekki, heldiir unglings- piltur. Anton tók að íhuga, hvort hann ætti ekki að fara fram í fremri stofuna. Þar var fólk. Hann heyrði hlátur og klið. Þar gat hann ef til vill hafið á ný njósu- arstörf sín og náð meira árangri. Þá opnuðust dyr á hinum enda herbergisins, og maður kom inn. Gesturinn nýi bauð gott kvöld og kvað vera illt veður úti. Og eins og til að rök- styðja þessa fullyrðingu, lét hann regnið af hattbarðinu drjúpa niður á gólfið. Undan frakkanum skein í hástígvél ein mikil. Maðurinn hafði stungið buxunum niður í stígvélin. Þegar hann hafði farið úr frakkanum og hengt hann upp, spíg- sporaði hann um gólfið og neri saman höndunum. Anton horfði ánægjulegur á gestinn. Hið blómlega andlit hans, líkam- inn stór og sterklegur, vakti traust hans þegar í stað. Það var auðvitað að þessi hafði krafta í kögglum, hverrar stéttar sem hann svo var. Eftir hegðun hans að dæma virtist hann 'vera kunnugur hér. Hann kallaði gegnum dyrnar, sem stóðu í hálfa gátt: »Minna«. Kom heimasætan þá í ljós. Anton hlustaði nákvæmlega á samtal þeirra, sem var næsta Iágt. Iiann gat þó skilið, að gesturinn pantaði kvöld- verð, og svo hvarf stúlkan. Eitt glas af bajersku öli var komið með handa gest- inum, og drakk hann úr því hálfu í ein- um teyg. Maðurinn sagði, að bleytan hið ytra krefðist bleytu hið innra. Anton samsinnti því. Honum féll gesturinn vel í geð. Hann var alveg eins og fólk er flest. »Hann lítur ekki þannig út, að hann muni neita aö segja mér það, sem ég spyr hann um«, hugsaði fjárkaupmaður- inn með sjálfum sér. Maðurinn spurði, hvort sér leyfðist að setjast við borðið, sem búið væri að leggja á. Hann ætlaði líka að fá heitan mat, bætti hann við til skýringar. Anton var því skiljanlega ekki mótfallinn. Nú sátu þeir hvor and- spænis öðrum og tóku nú tal saman. Samtalið gekk greiðlega. Hann var, eins og Anton hafði búizt við, úr þorpinu. Hygginn maður hlaut hann að vera, það var auöheyrt á öllu, sem hann sagði. Auk þess virtist hann ekki vera bóndi, eftir höndunum að dæma. Hann gerði bjórnum góð skil, það var óhætt um þaö! Anton var alveg steinhissa á því, hvern- ig þessi maður hélt glasinu upp að Ijós- 15

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.