Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Page 26

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1933, Page 26
120 NÝJAR KVÖLDVÖKUB an greip hann með heljarafli um báöa fætur prests, keyrði hann niður við hlið sér og mælti: »Nú erum við jafnir«. Að svo mæltu stóðu báðir upp og hlógu dátt að viðureigninni. Bessi átti þrjú börn, sem úr barnæsku komust, tvær dætur og einn son. Dætur hans hétu Kristbjörg og Elísabet, en son- ur hans Jóhann; hann lærði trésmíði hjá Tryggva Gunnarssyni á Hallgilsstöðum og varð bóndi á Skarði í Dalsmynni. Jó- hann var mesti dugnaðarbóndi og mikil- hæfur maður. — Bessi hefur kynsæll orðið og er margt fólk frá honum kom- ið, allt þróttmikið og vel gefið. Hann dó á níræðisaldri skömmu fyrir síðustu alda- mót. 57. Frá Bjarna Davíössyni o. fl. Davíð á Reykjum átti sex sonu, sem allir urðu bændur í dalnum um langt tímabil. Bjarni bjó á Snæbjarnarstöðum, Guðmundur í Hjaltadal, Sigurður á Vet- urliðastöðum, Jónatan á Reykjum; Davíð bjó fyrst í Sigluvík á Svalbarðsströnd, síðar í Bakkaseli, en fór til Ameríku 1873; þá fór Helgi bróðir hans í Bakka- sel. — Bræður þessir ólust upp á Reykj- um hjá foreldrum sínum, þangað til þeir fóru að búa. Var Bjarni elztur, en Guð- mundur ári yngri. Fóru þeir mjög ung- ir að ganga á beitarhús, tíu og ellefu áfa, og þótti sumum það ofætlun, því að beit- arhúsganga er erfið á Reykjum. En svo hagar til, að Tungubær er rétt austan við ána á móti Reykjaseli og örskammt á milli. Á þeim tíma bjuggu Bjarni og Kristrún í Tungu; lét Kristrún oft hjálpa þeim í beitarhúsunum og t’yigja þeim á leið, þegar veður var vont; sagði hún þeim líká að skreppa yfir að Tungu, hvenær sem þeir gætu því við komið. Voru þá æfinlega rausnarlegar góðgerð- ir á boðstólum og oft gjafir, svo sem sokkar, vettlingar eða annað, sem verið gat til aðhlynningar og gagns, því að svo mikil mannkostakona var Kristrún, að hún átti fáa sína líka. Það var venja Davíðs bónda, að ljá Tunguhjónum engí á hverju sumri einhverstaðar í Reykja- landi, aldrei minna en svo, að heyja mætti 20—30 hesta; tók hann aldrei neitt fyrir engjalán þetta, heldur lét það koma fyrir hjálpsemi þá, sem synir hans urðu aðnjótandi af hendi Tunguhjóna. Var Kristrún mjög þakklát Davíð bónda fvr- ir þetta og lét drengi hans njóta þess margfaldlega. Á þeim árum, þegar þeir bræþur voru ungir að aldri, var ekkert engi fyrir ut- an og neðan Reyki, heldur voru þar mó- ar með hálffúnum við. Guðmundur- fékk þá hugmynd, að vel mætti gera móana að engi með því að taka skurð úr Reykja- ánni og hleypa vatni á móana. Talaði hann fyrst um þetta við bræður sína; voru þeir þegar á sama máli og kom sarn- an um, að sjálfsagt væri að koma þessu undir eins í framkvæmd. Komu þeir að máli við fööur sinn og báðu hann leyfis að mega byrja á verkinu. Davíð bór.da leizt ekki sem bezt á þessa nýbreytni í fyrstu; hélt hann að þeir mundu litlu orka og ekkert hafast upp úr því nema erfiði; sagði hann samt, að þeir mættu reyna þetta, ef þeir vildu. Þá var Guð- mundur tólf ára gamall og ekki stór, en vit og fyrirhyggju hafði hann í ríkuleg- um mæli. Gerðist hann nú verkstjóri, en Bjarni, Davíð og Sigurður unnu meö honum. Grófu þeir skurð úr Reykjaánni, hlóðu garð fyrir vatnið og unnu af kappi miklu, því að allir voru þeir áhugasamir og skarpir og gerðu sér góða von um, að fyrirtækið mundi heppnast vel. Gengu þeir að þessum starfa í nokkur vor, og. varð að góðum árangri. Nú eru móarnir orðnir að grundum og allgott engi, sem gefur' árlega af sér 80 hesta af bezta

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.