Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 21
Það var skollið á myrkur er ég
ók suður í Hafnarfjörð, og ég ók
með svörtum sjónum, þar sem
brimið þvoði hin skreipu sker og
andaði þungt undir dökku hraun-
inu. Veðurspáin var slæm, hann
spáði stormi og ég virti fyrir mér
ógnandi næturhimininn. Ég var á
leiðinni til Hrafnistu í Hafnar-
firði, til að ræða við Eyjamann,
frægan skipstjóra, Guðmund Vig-
fússon, og von bráðar birtist hús
sjómannsins, Hrafnista, uppljóm-
að í myrkrinu.
Viðmælandi minn var frægur
sjómaður, en samt hafði fundum
okkar aldrei borið saman áður, svo
ég myndi, og í rauninni vissi ég
lítið um hann, annað en það, að
hann var frægðarmaður á sjó og
orðinn hálf áttræður. Hann bjó á
Guðmundur Vigfússon, skipstjóri og útgerðarmaður, ásamt konu sinni Stefaníu Guð-
rúnu Einarsdóttur. Guðmundur Vigfússon hóf formennsku ,á vélbátum í Vestmanna-
eyjum árið 1928 og var formaður í Eyjum í 30 ár.
Maður sér þó
til sjávar enn
Rxtt við
Guðmund Vigfússon,
sklpstjóra frá
Vestmannaeyjum
herbergi 312, var þar einn þessa
stundina, því konan var á sjúkra-
húsi.
Ætt og uppruni
Guðmundur Vigfússon tók mér
ljúfmannlega og margra áratuga
sjómennska hafði ekki sett á hann
meiri mörk en það, að hann hefði
allt eins vel getað verið innisetu-
maður alla ævi. Hann bauð kaffi
og spurði hvort ég vildi staup og
vindil, en við héldum okkur við
kaffið. Verk var fyrir höndum, að
skýra frá sumu af því sem ber fyrir
bátaskipstjóra, fyrir mann sem
alla ævi hefur barist á sjó, ýmist
við saltan storm og úfinn sjó, ell-
egar í blíðviðri, þegar fjöll standa í
vatni.
Við komum okkur vel fyrir í
djúpum stólum, rétt eins og höfð-
ingjar og hann hefur sögu sína og
á meðan sötrum við kaffið:
— Ég er fæddur 10. febrúar
árið 1906 í Holti í Vestmannaeyj-
um og mín ætt er komin austan úr
Skaftafellssýslu og eins ofan úr
sveit, undan Fjöllunum. Afi minn
var frá Berjanesi, Guðmundur
Þórarinsson í Vesturhúsum, en
forfaðir okkar er eiginlega Bergur
Brynjólfsson, frá Skammadal í
Mýrdal. Ég er því eins og allir
Eyjamenn ættaður úr landi. Þeir
rekja allir ættir sínar upp á land, í
alla hluta landsins, en flestir eiga
þó uppruna sinn á Suðurlandi sem
gefur auga leið.
Foreldrar mínir voru þau hjón-
in Guðleif Guðmundsdóttir
(1880—1922) og Vigfús Jónsson,
formaður og útgerðarmaður í
Holti í Vestmannaeyjum
(1872—1943) og við systkinin
vorum átta. Auk þess voru tvö
hálfsystkini, sem faðir minn eign-
aðist eftir að mamma dó, en hún
dó mjög ung, varð aðeins 42 ára.
Húsið okkar, Holt, var byggt
um aldamótin. Það var timburhús
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 19