Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 32
á öðrum stöðum, og er víst enn.
— Eru Vestmannaeyingar sér-
stök þjóð?
— Ekki vil ég nú segja það.
Þetta er blanda af fólki. En hitt er
annað mál, að það sýndi sig í gos-
inu, hvað rætumar stóðu djúpt og
samstaðan var mikil. Það var að-
dáunarvert hvað þeim tókst að
gjöra, en ég get dæmt það, því ég
var fluttur í land löngu fyrir gos.
Hinu má heldur ekki gleyma, að
þeir hlutu drengilegan stuðning
allsstaðar frá og þarf ekki að fara
mörgum orðum um það.
En þá sá maður hvað Vest-
manneyingar elskuðu sína ætt-
jörð, ef svo má orða það.
— Ég fór frá Vestmannaeyjum
árið 1957, en það var vegna veik-
inda sonar okkar.
Við fluttum til Hafnarfjarðar og
leigðum okkur hér hús fyrsta árið,
en keyptum síðan íbúð og bjugg-
um í Hafnarfirði í 7 ár. Síðan
fimm ár í Reykjavík, en þá keypti
ég hús í smíðum í Hafnarfirði og
þar bjuggum við, uns við fluttum
á Hrafnistu fyrir um það bil fjór-
um árum.
— Fyrstu vertíðina eftir að ég
fluttist til Hafnarfjarðar, var ég
með bát fyrir Jón Gíslason, út-
gerðarmann. Það var vertíðin
1958. Það var Fróðaklettur. Ég átti
minn hlut í bátunum austur í Eyj-
um og þeir sáu um útgerðina á
honum, eða Vonina II. Ég gerði
bátinn minn út í Eyjum í þijú ár
með þeim, en keypti í millitíðinni
minni bát, sem ég var með héma í
tvær vertíðir. Lundi hét hann.
Bræður mínir keyptu síðan Von-
ina, en ég gerði út hér í félagi við
annan mann í fimm ár, en þá seldi
ég og hætti. Fór þá að vinna við að
fella net og svoleiðis.
— Og ertu nú hættur störfum?
— Já svo má heita. Við erum
jú með línu í kjallaranum. Það
er bara töluvert, 8—12 karlar
vinna þama. Það styttir manni
daginn. Og færir mann nær upp-
runanum. Þeir fá nú bleytu öðru
hverju sumir, þannig að þetta er
réttur heimur, og maður sér til
sjávar enn. Það gerir allan mun.
JG.
INNKAUP HE
ÆGISGÖTU 7. REYKJAVÍK - SÍMI 22000 - PÓSTHÓLF 1012.
TELEX 2025
Sendir sjómönnum bestu kveðjur á Sjómannadaginn
FISKIMALÁSJÓÐUR
Tjarnargötu 4 — Reykjavík
Stofnsettur með lögum 23. maí 1947.
Veitir lán gegn siðari veðrétti til stofnunar alls
konar fyrirtækja, sem horfa til eflingar
fiskveiðum og hagnýtingu sjávar-
afurða og veitir styrki
í sama tilgangi.
Fé sjóðsins á að verja
til eflingar sjávarútvegi landsmanna.
30 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ