Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 38

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 38
höfn, og var hún 20 metra löng. Ekki skal fullyrt um gagnsemi hennar, en árið 1934 kaupir Kaupfélag Ámesinga jörðina. Um þetta segir Guðmundur Daníels- son, rithöfundur í grein á þessa leið. (Stytt): „Á stjómarfundi Kaupfélags Ámesinga 2. apríl 1934 var sam- þykkt að festa kaup á jörðinni Þorlákshöfn með þeim mann- virkjum, sem þar voru. Kaup þessi voru í upphafi mest hugsúð til að hefja útgerð í atvinnubótaskyni, hef ég einhvers staðar lesið, en tel mjög hæpið. Aftur á móti mun hafa vakað fyrir Agli að bæta svo lendingarskilyrði, að þar yrði brátt hægt að skipa upp flestum vörum Sunnlendinga, það er að segja að byggja hafskipahöfn. Árið 1935 lét Egill kaupfélagið hefja útgerð í Þorlákshöfn. Ólafur bóndi Þorláksson á Hrauni í Ölfusi er einn af örfáum íslendingum, kannski sá eini, sem vitni varð að því, þegar Egill kom fyrsta sinni út í Þorlákshöfn til þess að ræða við eina formann staðarins um væntanleg kaup K.Á. á jörðinni, umsvif og at- vinnurekstur þar. Ólafur segir frá þessu í minningargrein, sem hann skrifaði um Egil látinn: „Nú skal byggja borg“ Sem áður sagði, þá eru það einkum tveir héraðshöfðingjar, er setja svip sinn á Þorlákshöfn á þessari öld. Annar þeirra Þorleifur á Háeyri sér hina eldfomu útgerð áraskipa liðast í sundur í straumi tímans, hinn Egill í Sigtúnum tekur að sér að leiða Þorlákshöfn Margir nefna það Miðaldaskeiðið í Þorlákshöfn, eða þann tíma er vélbátaútgerð var hafin í Þorlákshöfn, en höfnin var enn svo frumstæð að 30—50 tonna bátar urðu að liggja við legufæri og hanafót, milli róðra. Þeir skutust aðeins upp að bryggjunni til að landa og taka vistir. Dolos-jötnar halda haföldunni í skefjum, en þeir eru uppistaðan í brimvamargörðum hafnarinnar. um stað. Þeir köstuðu nótinni og fengu 60 fiska. Ekki hugkvæmdist þeim að nota tvö skip til að kasta nótinni, en það er önnur saga. Er þetta líklega í fyrsta skipti, sem gerð er tilraun til þorskveiða með nót hér á landi. Ekki mun nótinni þó hafa verið kastað nema einu sinni. Þess má einnig geta, að Gísli í Nesi, varð fyrstur manna til að nota þorskanet í Þorlákshöfn, en áður fóru skipin með lóðir. Síðasti bóndinn í Þorlákshöfn var Guðmundur Jónsson, en hann flutti að Eyði-Sandvík í Flóa árið 1940. Þá lagðist sveitabúskapur af í Þorlákshöfn. Skúli Þorleifsson var ráðsmaður í Þorlákshöfn 1942—1943 og viðloðandi þar um skeið. Lítil útgerð mun hafa verið í Þorlákshöfn í tíð Guðmundar Jónssonar. til nýrrar tíðar. Báðir þessir menn voru orðnir að þjóðsögu, áður en þeir voru allir, sem er fremur sjaldgæft á Islandi, og ekki hafa þeir heldur meiðst í endurminn- ingunni. — Standa þar fyrir sínu. Sem áður sagði þraukaði Þor- leifur á Háeyri til ársins 1927 í Þorlákshöfn, enda staðurinn bú- inn að vera í bili, sem viðunandi verstöð. Þá verða tímamót í sögu Þor- lákshafnar. Árið 1929 mun fyrst hafa verið reynt að gjöra bryggju í Þorláks- 36 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.