Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Side 43
starfsstöðvar og iðnfyrirtæki í
Þorlákshöfn. Þar er grunnskóli og
félagsheimili sem búið er að reisa
að hluta til og kirkja er í smíðum.
Við könnun sem gjörð var fyrir
nokkrum árum í bamaskólanum í
Þorlákshöfn, kom í ljós, að allar
sýslur og kaupstaðir landsins áttu
fulltrúa í Þorlákshöfn, eða fólk
sem sest hafði að í Þorlákshöfn,
þótt ef til vill séu Sunnlendingar í
meirihluta.
Sjómannadagurinn er hátíðleg-
ur haldinn í Þorlákshöfn, og er þá
mikið um dýrðir.
Eftir að hafa farið víða um,
skoðað sterkbyggð, og vel haffær
skip í Þorlákshöfn og miklar
starfsstöðvar, þar með talinn
Meitilinn, sem nú hefur starfað í
rúma þrjá áratugi, fórum við inn í
kaffi í eina sjóbúðina.
Matráðskonan var önnum kaf-
in.
— Ég ætla að baka flatkökur,
sagði hún glettnislega. Ég held að
það sé að koma vertíð.
— Mál til komið sagði einhver.
Ógæftir hafa verið miklar í vetur,
og menn biðu páskahrotunnar og
Þorleifur á Háeyri, alþingismaður Guð-
mundsson. Hann var seinasti útvegsbónd-
inn í Þorlákshöfn í þeirri tíð, að stórútgerð
var þar stunduð með áraskipum.
það gjörðu menn nú í öllum ver-
stöðvum við Suðurland, því með
góðri vertíð stendur hér allt og
fellur. Og þegar við ókum út úr
þorpinú og upp á heiðina, blasti
vor eini banki við sjónum, Sel-
vogsbanki heitir hann. Útlánin
þar fara ekki fram úr innlánum.
Það er ekki enn hægt að prenta
fisk, hvað sem síðar verður.
JG.
Mynd frá reiptogi á Sjómannadaginn i Þoriákshöfn.
Óskum sjómannastéttinni
til hamingju
með Sjómannadaginn.
Þökkum framlag sjómanna til
uppbyggingar lands og lýðs
LÝSI & MJÖL HF.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 41