Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Qupperneq 46
Bátur í Hindisvík á Vatnsnesi, nú í Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna að
Reykjum í Hrútafirði.— Bátinn smíðaði Ólafur Jónsson á Gnýsstöðum á Vatnsnesi um
1878, en hann smíðaði um 120 báta alls. Ljósm. Þór Magnússon, 1964.
og hátt ris. I því er mjög viðamikil
timburgrind úr lerki, og var jarð-
hæðin múruð upp í binding. Hús-
ið var óeinangrað að öðru leyti.
Til þess að Brydehús yrði not-
hæft safnhús, þurfti að fara fram á
því gagnger viðgerð. Fram-
kvæmdir við húsið hófust í októ-
ber 1980, og hafa staðið yfir síðan,
með nokkru hléi þó vegna fjár-
skorts. Fram hafa farið endur-
bætur á burðargrind hússins og
undirstöðum. Lokið er viðgerð á
framhliðinni, en þar var skipt um
grind og klæðningu. Austurgafl
varð að rífa og endurbyggja gafl-
44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
grind og undirstöður. Nýir glugg-
ar og hurðir hafa verið smíðaðar í
allt húsið. Nú er að því unnið að
einangra veggi og ris, endursmíða
gólf, smíða stiga o.fl. Síðan er
væntanleg ný hitalögn, raflögn og
lýsing. í þeim áfanga, sem nú er
hafinn, mun Brydehús sjálft
væntanlega verða fullgert sem
safnhús.
Á næsta ári er síðan fyrirhugað
að gera við viðbyggingu þá, sem
áföst er húsinu (slökkvistöðina
gömlu), og reisa allstóra báta-
skemmu á lóðinni þar fyrir vestan.
Nefndin stefnir að því, að hægt
verði að opna safnið í þessum
húsakynnum á árinu 1983, en ekki
er ljóst á þessari stundu, hvort
fjárhagur leyfir svo hraða fram-
kvæmd. í síðasta lagi ætti að mega
opna safnið vorið 1984.
Arkitekt og framkvæmdastjóri
þessara bygginga er Páll V.
Bjamason og byggingameistari
Bjami Böðvarsson.
Fé til framkvæmdanna hefur
einkum komið úr tveimur áttum,
úr Byggðasjóði og ríkissjóði. í
raun og veru skipti það sköpum
um verk þetta, er stjóm Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins sam-
þykkti árið 1979 að verja mætti 1 %
af vaxtatekjum Byggðasjóðs til
varðveislu menningarminja, eink-
um sjóminja. Hér er um verulega
fjárhæð að ræða, sem síðastliðin
tvö ár hefur runnið að dijúgum
hluta til Sjóminjasafnsins, enda
þótt aðrar safnastofnanir hafi
einnig notið þar góðs af.
Á fjárlögum árið 1981 var í
fyrsta sinn veitt fé til þessara
framkvæmda, 300 þúsund krónur.
Þá hefur og fengist dálítið framlag
úr Þjóðhátíðarsjóði. Loks hafa
bæjarsjóður og hafnarsjóður
Hafnarfjarðar lagt nokkuð af
mörkum til endursmíði Bryde-
húss.
Um síðastliðin áramót hafði
verið varið til þessara fram-
kvæmda tæpum 800 þús. kr.
Framkvæmdafé á þessu ári nemur
um 1.2 millj. kr., sem ætti að duga
til að fullgera safnhúsið og koma
upp sökklum fyrirhugaðrar báta-
skemmu. Næsta árs biði þá sjálf
skemmusmíðin og viðgerð á
gömlu slökkvistöðinni.
Skammtímalausn
í húsnæðismálum
Þegar Sjóminjasafnsnefnd tók
þá ákvörðun að vinna með fyrr-
greindum hætti að bráðabirgða-
lausn á húsnæðisvanda safnsins,
var það gert eftir allmiklar vanga-
veltur og umhugsun. Vissulega