Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 55

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1982, Page 55
Línurit er sýnirfjölda sílda (4 ára og eldri) samkvæmt bergmálsmælingum 1974—1982. Línurit er sýnir hrun íslensku sumargotssíldarinnar 1961—1970 og endurreisn hennar síðastliðinn áratug. S.1.3 ár hefur hrygningarstofninn verið um 220 þús. tonn en var um 300 þús. tonn við upphaf tímabilsins. þar mest um 1971 árganginn þegar hann varð kynþroska árið 1975 og 1976 enda tífaldast stofninn þá á fjórum árum. Næst eykst stofninn verulega árið 1978 þegar 1974 árgangurinn varð kynþroska. Hin síðustu ár hefur hrygningarstofninn verið um 220 til 230 þúsund tonn. Þá hefur komið í ljós við útreikninga með aldur-aflaaðferðinni að svokallaðir fiskveiðidánarstuðlar voru um 4 sinnurn hærri á tímabilinu 1961 til 1969 en þeir hafa verið hin síðustu 5 til 6 ár. Enginn vafi leikur á því að hinir háu fiskveiði- dánarstuðlar á 7. áratugnum áttu mjög mikinn þátt í og voru raunaraðalástæðan fyrir hruni stofnsins. Hinu ber þó ekki að leyna að allt frá árinu 1964 mistókst klak þannig að enginn góður árgangur bættist í stofninn fyrr en 1971 árgangurinn varð kynþroska árið 1975. Uppbygging stofns- ins á síðastliðnum áratug hefur því verið mjög háð stærð þeirra árganga sem bæst hafa í hrygningarstofninn að undanförnu. íslendingar voru svo einstaklega heppnir aðárið 1971 gaf lélegurhrygningarstofn (12 þúsund tonn, mjög sterkan árgang. Þessi árgangur var notaður til að koma upp- byggingu stofnsins af stað. Án hans hefði endurreisn sumargotsstofnsins tekið mjög langan tíma, sennilega svo áratugum skipti, eins og komið hefur í ljós bæði að því er varðar norsk-íslensku síldina þar sem enginn slíkur árgangur hefur komið að ekki sé talað um afdrif íslensku vor- gotssíldarinnar en hún er nú nánast út- dauð við landið. LOÐNA Þróun veiðanna Eins og kunnugt er hófust loðnuveiðar til bræðslu hérlendis um miðjan 7. ára- tuginn. Þetta voru vetrarveiðar sem stóðu frá því fljótlega eftir að loðnu hafði orðið vart við S-ströndina þar til hrygningu lauk. Afli varð brátt 100—200 þús. tonn á ári, en náði hámarki, 275 þús. tonnum, 1972 er loðnunefnd var sett á laggimar og hóf að skipuleggja landanir. Árið eftir jókst loðnuafli landsmanna í 440 þús. tonn, en þá var byrjað að veiða strax upp úr áramótum meðan loðnan var enn á Austfjarðamiðum. Árin 1974—79 var afli á vetrarvertíð yfirleitt milli 450 og 575 þús. tonn, en hefur síðan farið ört minnkandi í hlutfalli við stofnstærð og takmarkanir sem settar hafa verið til vemdar hrygningastofninum. Að undan- skildum árunum 1977—79, þegar Færey- ingum var veitt leyfi til takmarkaðra loðnuveiða í íslenskri landhelgi, hafa vetrarveiðamar eingöngu verið stundaðar af landsmönnum. Sumarið 1976 hófust veiðar á ætissvæði loðnunnar út af N-landi og Vestfjörðum. Þessar nýju veiðar jukust hröðum skref- um og seinustu 4 árin hefur afli á svo- kallaðri sumar- og haustvertíð verið á bilinu 525—650 þús. tonn. En nú voru íslendingar ekki einir um hituna lengur. Norðmenn hófu veiðar á Jan Mayen svæðinu sumarið 1978 og seinustu tvö ár- in hafa Færeyingar og lönd EBE veitt talsvert af loðnu við A-Grænland. Síðast- liðin 4 ár hafa veiðar útlendinga úr ís- lenska loðnustofninum samtals numið um 140 þús. tonnum til jafnaðar á ári. Með tilkomu hinna nýju sumar- og haustveiða hefur aflinn því meira en tvö- faldast á aðeins tveimur árum eða úr rúmum 450 þús. tonnum 1976 í nær 1160 þús. tonn 1978. Ef miðað er við seinasta áratug hefur aflinn hins vegar a.m.k. fimmfaldast. Sérstaða loðnunnar Eins og margir vita hrygnir loðnan að- eins einu sinni og drepst síðan, en kyn- þroska nær hún við 3—4 ára aldur eftir atvikum (ætisskilyrðum og því um líku). Aðeins tveir árgangar standa því að hrygningunni hverju sinni og eroft lítið af þeim eldri. Þetta og skammlífi tegundar- innar gerir það að verkum að reikna má með miklum og snöggum sveiflum í stærð stofnsins, jafnvel milli ára. Slíkar sveiflur þarf að koma auga á svo snemma sem auðið erog hagnýta síðan vitneskjuna við stjómun veiðanna. Er þetta fremur öðru SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 53

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.