Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1924, Page 16

Eimreiðin - 01.10.1924, Page 16
328 SAMBAND ÍSLANDS OQ DANMERKUR EiMREiÐiN ekki getað gengið þess duldir, að íslendingar hafa nú nokkuð annan hug til þeirra en áður. Að vísu hefur síðan stundum andað kalt til íslands frá þeim stjórnmálaflokknum, sem Is' landi hefur lengstum verið erfiðastur, Hægrimönnum, og ekki tóku þátt í samningagerðinni 1918. En þessir menn eru í mikl' um minni hluta, enda munu þeir nú farnir að sætta sig það, sem orðið er. Danir, sem til íslands koma, munu alstaðar fá hér góðar viðtökur, og íslendingar þurfa fráleitt yfir öðru að kvarta í Danmörku, enda starfar öflugur, en þó ópólitiskur félagsskapur að því að auka viðkynningu þjóðanna og efla samvinnu milli þeirra, og er hér átt við Dansk íslenzka fe* lagið (»Dansk-islandsk Samfund*). Hér má þá líta fyrstu og auðsénustu ávexti sambandslag* anna: Fult bróðerni og yfirleitt góða samvinnu milli sam- bandsbjóðanna. Og þeir ávextir eru áreiðanlega mikilsvirðL svo framarlega sem það er víst, að mönnum líður betur og þeir njóta sín betur til allra góðra verka, ef þeim er kala- laust til þeirra, sem þeir eiga við að skifta og eiga ekki óvin- um að verjast. Ekki er ólíklegt, að einhver kunni jafnvel að líta svo á sem þessi breyting á sambúð Dana og Islendinga sé bezti ávöxtur sambandslaganna. Þá er hitt ekki síður víst, að mikil orka hlýtur að hafa gengið til stjórnardeilunnar við Dani. Allar þær ræður, sem haldnar hafa verið, og öll þau rit, sem skráð hafa verið um sambandsmálið, og allar þær æsingar, sem óhjákvæmilega hafa leitt af sambandsdeilunni, hafa tekið sinn hluta af kröftum þjóðarinnar. Mætti gera ráð fyrir því, að þeim tíma og þeirri orku mætti verja til annara þarflegra hluta. Hugðu og ýmsir gott til þess, að nú mættu menn snúa sér óskiftir að innan- landsmálunum, þegar sambandsdeilunni væri til lykta ráðið. Ekki skal dæmt hér um það, hversu vel sú spá hefur ræzt. Afleiðingar styrjaldarinnar miklu og friðarsamningarnir svo- kölluðu í Versölum 1919 hafa valdið því, hér sem annarstað- ar, að flest hefur staðið í stað innanlands eða jafnvel rekið- En sízt er ástæða til að halda það, að betur hefði til tekist. ef sambandsmálið stæði enn óleyst. Því hefur reyndar verið fleygt, að sögn, að gengi íslenzkr- ar krónu mundi aldrei hafa orðið annað en dönsku krónunnar,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.