Eimreiðin - 01.10.1924, Blaðsíða 31
eimreiðin
FERÐ VFIR ATLANTSHAFIÐ
343
' fyrstunni, því stigar lágu upp og niður milli mörgu gólfanna
eða bygðanna, en þar að auki voru lyptivélar í stöðugum
Qangi fyrir þá, sem vildu flýta sér milli bygða. Eg hafði fengið
káetu á h-gólfi eðaj h-dekki (þilfari), eins og það er kallað.
En þar fyrir ofan lágu gólfin g, f, e, d, c, b, og a. — Mín
káeta var ætluð fjórum mönnum, en rúmgóð var hún og tölu-
vert snotrari en káeturnar gerast á 1. farrými á skipunum
okkar.
Alstaðar var bjart í skipinu af rafljósum, og endalausir gang-
ar lágu á milli káetanna, því þær voru margar. Mín hafði
númerið 431. —
Eg sannfærðist um það seinna, þegar skipslæknirinn tók
mig með sér og sýndi mér skipið, að það voru engar ýkjur
(sem einhver náungi hafði sagt mér), að maður gæti eftir
fiiorgunverð tekið sér göngutúr eftir hinum ýmsu bygðum, frá
e>nu skipsrúmi til annars og ekki náð í tæka tíð að komast
til miðdegisverðar.
En eg fór nú fyrst að kynna mér alt það svæði, sem mér var
nfmarkað á 2. farrými og fanst það sæmilegt. En farþegum á
2- farrými er ekki heimilt, nema með sérstöku leyfi, að fara
Urn 1. farrými. Hinsvegar var ætíð frjálst að heimsækja þá,
sem voru í hinum lægri bygðum 3. farrýmis.
Borðsalur 2. farrýmis var á f-gólfi, afarstór, með urmul af
sérstökum borðum og þægilegum stólum, — allur skrautlegur,
°g borðin prúðbúin hvítu líni, vönduðum borðbúnaði og blóm-
um. A b-gólfi var reykskáli, kvennaskáli með hljóðfæri, lestr-
arstofa með góðu bókasafni og tvær þægilegar skrifstofur. En
'nnan um mörgu káetuklefana á öllum gólfum voru þrifnaðar-
herbergi, baðherbergi og skrifstofur, eða bústaðir sumra emb-
®ttismanna skipsins. Ennfremur var þar á einum stað verzl-
unarbúð, þar sem kaupa mátti allskonar sælgæti og glysvarn-
ln9 — rakstofa, veitingastofur, prentsmiðja, þvottahús, skósmíða-
stofa, klæðskerastofa o. s. frv. — I prentsmiðjunni var t. d. dag-
*ega prentað blað með tíðindum víðsvegar úr heimi, því þráð-
laus skeyti svifu að á hverri stundu.
Einna mesta furðu mína vakti það, hve margir voru þjónar-
nir og borðalagðir embættismenn á þessu skipi, því alstaðar
rahst maður á svuntuklædda skutilssveinar, hvítsvuntaðar og