Eimreiðin - 01.10.1924, Blaðsíða 35
Eimreidin FERÐ YFIR ATLANTSHAFIÐ 347
fyrir framan sig og barði með tveimur prikum, en hina, sem
var miklu stærri, hafði hann fyrir aftan sig og sparkaði í
hana við og við; reið þá af þruma, svo að þilfarið skalf. En
annað slagið losaði hann aðra hendina frá minni trumbunni
hl að berja saman tveimur pjáturhlemmum með helvízku
Slingri, eða hringla með járnstaf innan í þríhyrnu úr stáli, er
hékk framan við hann. Hann sýndist vinna þetta verk sérlega
samvizkusamlega og var allur á einlægu iði til að gæta rétt
skyldu sinnar. — En unga fólkið steig danzinn og undi vel
hag sínum. Það er sagt, að margar bráðabirgða-trúlofanir
Serist á þessum farþegaskipum, en að þær endist sjaldan
lengur en þangað til komið er til New Vork og hleypt er
vt úr réttinni. »Þá hljóp alla réttina«, segir í gömlum annálum.
7.
Bezta dægradvöl var borðhaldið. Qekk það alveg fram af
^ér, hve vandað var til matarins og ekkert til sparað. Rétt-
lrnir voru ákaflega margir, og stimamjúkir þjónar voru á
stöðugri fleygiferð um salinn með rjúkandi krásirnar, en hljóð-
taerasveitin lék á meðan. í rauninni fanst mér alt of mikið
að manni borið og óþarflega miklu til kostað. En samkepnin
a milli hinna mörgu skipafélaga hefur smámsaman skapað
hetta óhóf.
Berengaria tilheyrir Cunardlínunni; það er voldugasta skipa-
^élagið brezka. Helzti keppinautur þess er »White Star line«.
OH Atlantshafs-skipafélögin sýnast græða stórfé á mannflutn-
ln3unum til Vesturheims. Talandi vottur þess eru skrautbygg-
ln9arnar, sem þau félög hafa látið byggja fyrir skrifstofur
smar í ýmsum stórbæjum, bæði í Evrópu og Ameríku.
8.
Eg kyntist öðrum skipslækninum (því tveir voru um borð),
°9 gekk eg með honum einn morgun til að sjá sjúklinga
hans. Hann hafði laglegan spítala aftan til í skipinu og lágu
har eitthvað 10 kláðagemlingar og lúsablesar, að öðru leyti
ehki þungt haldnir, en þurftu daglegrar ræstingar við, til þess