Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1924, Page 22

Eimreiðin - 01.10.1924, Page 22
334 SAMBAND ÍSLANDS OG DANMERKUR eimreiðin efni óþarfa, því að engu skifti, hvort maður væri íslenzkur ríkisborgari eða danskur, af því að þeir nyti jafnréttis hvorir við aðra. Þessi ranga skoðun var þó bráðlega kveðin niður bæði hér á landi og svo af mótstöðumönnum sambandslag- anna í Danmörku. En alt um það hefur þessu máli ekki verið skipað með samningum milli landanna. íslendingar tóku þann kostinn vorið 1919, að gera sjálfir lagafrumvarp um það, hvernig menn skyldi fá og missa íslenzks ríkisfangs og hverja Island skyldi helga sér af mönnum þeim, sem voru sameigin- legir ríkisborgarar íslands og Danmerkur 1. des. 1918. Var mál þetta bæði borið undir dansk-íslenzku ráðgjafarnefndina og dönsku stjórnina, og urðu fyrirmæli íslenzku laganna um ríkisborgararétt og um það, hverir verða skyldi íslenzkir ríkis- borgarar, í fullu samræmi við óskir og álit þeirra. Hefur og aldrei komið nokkur athugasemd frá Danmerkur hálfu í þá átt, að ísland hafi ekki skipað því máli að öllu leyti fullnægj- andi fyrir hana. Eftir 6. gr. sambandslaganna skulu danskir ríkisborgarar njóta sama réttar á Islandi sem íslenzkir ríkisborgarar, og ís- lenzkir ríkisborgarar sama réttar í Danmörku sem danskir ríkisborgarar. Þó eru borgarar annars ríkisins aldrei skyldir til herþjónustu í hinu. Andstæðingar sambandslagafrumvarps- ins töldu þessi fyrirmæli 6. gr. svo háskaleg, að eigi mætti ganga að frumvarpinu fyrir þá sök. Menn sögðu, að danskir ríkisborgarar gætu þyrpzt hingað í skjóli jafnréttisákvæðisins og gert landið danskt. Þeir héldu því og fram, að íslendingar gætu ekki, án þess að brjóta sambandslögin, sett í lög sín nokkrar skorður við eða skilyrði um réttindanautn danskra ríkisborgara. En þetta var mikill misskilningur. Vér getum sett og höfum sett margháttaðar takmarkanir um réttinda- nautn þessa. Takmarkanir og hömlur í þessa átt verða ein- ungis að ganga jafnt yfir danska sem íslenzka ríkisborgara. Vér höfum t. d. gert 5 ára búsetu á íslandi að skilyrði kosn- ingarréttar og kjörgengis til alþingis, 1 árs búseta er skilyrði til þess að geta látið skrásetja skip sitt hér, búseta hér á landi er skilyrði til þess að mega eiga og eignast hér fasteignir o. s. frv. Rétt til fiskiveiða í landhelgi má þó ekki binda því skilyrði, að maður sé búsettur hér. Samskonar er auðvit-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.