Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1924, Side 42

Eimreiðin - 01.10.1924, Side 42
354 SKÁLDIÐ BVRON LÁVARÐUR EIMREIÐ'n eftir sig í riti álit sitt á honum. Skiftir mjög í tvö horn um dómana. Landi hans og skáldbróðir, Southey, áleit Dyron ímynd alls hins illa, og ýmsir voru þeir, sem hölluðust á sömu sveif. Greifafrú Guiccioli trúði því hinsvegar fastlega, að hanrv væri engill í mannsmynd. Er hvorttveggja jafnfjarri sannu Slíkir voru dómarnir um manninn. Um skáldið voru einmS skiftar skoðanir. Skáldjöfurin'n Goethe skipaði Byron til saetis- á skáldabekknum enska næst Shakespeare; aðrir töldu hann standa að baki sumra samtíðarskálda, svo sem Shelley, oS enn standa deilur um, hvar skipa skuli Byron til rúms í Braga- höll. Ljóð hans og lífssaga draga enn mjög að sér athysl’ manna. Svo margt var einkennilegt um hann. Hann var svo einstæður, »undarlegt fyrirbrigði« af manni til. Hann var hinn ættstærsti, konungs- og aðalsblóð rann í æðum hans. Hann var hinn fríðasti sýnum, »fagur sem draumsýn* að dómi Walter Scott. Hann bjó á afskektu, hálfföllnu aðalssetri um skeið, en gerðist síðan hinn víðförlasti. Auk ættgöfginnar, fríðleikans OS óðalsins hlaut hann í vöggugjöf hina auðugustu og fjölbreytt- ustu skáldgáfu. Hann var því í fylsta máta gæddur hinu mesta atgervi andlega og líkamlega; einungis einn hængur var á ráði hans, — hann var fæddur með kleppfót, en andlegir yfir* burðir bættu úr því lýti. Tvítugur að aldri hélt hann stjórnmála- skörungum í efri málstofu enska þingsins hugföngnum með mælsku sinni. Hann ritaði heil afbragðskvæði á fáum dögum, er seldust svo í þúsundum á fyrsta degi eftir að þau birtust, synti, þótt haltur væri, yfir straumhart Hellusund í austurfÖr sinni. Slíkur maður vakti þá og vekur enn eftirtekt manna. Hetjudýrkun er sterkur þáttur í sálarlífi barna hinnar tuttug- ustu aldar, þó með nokkuð öðrum hætti sé en fyrri var. Sólir renna og hníga, en orðstír deyr eigi. Háreistar hallir hrynja að grunni, en »myndasmíðar andans«, hvort sem þ®r eru málaðar í litskrúð, högnar í marmara eða mótaðar í lýsi- gull skáldmálsins, geymast um aldir. Tíminn sljettir yfir margar ójöfnur, færir sanni nær dóma um menn og málefni. Svo er um Byron að nokkru. Old er liðin síðan hann féll ap velli í þjónustu þess málefnis, sem honum stóð huga næst. A þessu tímabili var hann ýmist hafinn hæst til skýja eða hon- um varpað niður fyrir allar hellur. Dómarnir um hann og.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.