Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1927, Side 32

Eimreiðin - 01.07.1927, Side 32
224 TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON EIMREIÐIN sem Gyðingar trúðu, að hlyti að vera af Davíðs-ætt, sam- kvæmt spádómum Gl. tm., og hvorttveggja sinnið er ættin rakin gegnum ]ósef, en ekki Maríu. Ættartölurnar eru að sönnu lítilsvirði og ekki mikið upp úr þeim leggjandi, því að þeim ber alls ekki saman, ekki einu sinni um það, hvers son Jósef, maður Maríu, hafi verið. Önnur segir, að faðir hans hafi heitið Jakob, hin að hann hafi heitið Elí. Ekki getur hvorttveggja verið rétt. En hitt virðist augljóst og eftirtektar- vert: Þær hafa báðar í sinni upphaflegu mynd ætlað sér að sanna, að Jesús væri kominn af Davíð, þar sem hann sé sonur Jósefs. Sannað er nú, að skorið hefur verið aftan af ættartölunni hjá Matteusi, þegar ættartalan var brædd saman við frásöguna um hinn yfirnáttúrlega getnað. Fyrir löngu höfðu biblíufræðingarnir tekið eftir, að svo hlyti að vera. En svo bættist það merkilega við, að árið 1892 fundu tvær lærð- ar konur frá Englandi brot af gömlu handriti N. tm. á sýr- lensku í klaustri suður á Sínaí, þar sem ættartalan í Matteusi endar svo: »Jakob gat Jósef; Jósef, sem mærin María var heitin, gat Jesú, sem nefnist Messías«. — Hjá Lúkasi byrjar ættartalan svona: »Og sjálfur var Jesús hér um bil þrítugur að aldri, þegar hann byrjaði, og var, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, sonar Mattats, sonar Leví o. s. frv.« — Talið er áreiðanlegt, að hér hafi verið bætt við orðunum: »eftir því sem haldið var«, þegar hugmyndin um meyjarfæð- inguna var komin inn meðal kristinna' manna. Lúkas guð- spjallamaður segir sjálfur frá því, að hann riti guðspjall sitt eftir heimildum, sem hann hafi athugað vandlega. Elzta heim- ild hans fyrir fæðingarsögu Jesú virðist hafa sagt Jesúm elzta soninn fæddan í hjónabandi þeirra Maríu og Jósefs. Þegar menn síðar hugðu að gera Jesúm guðdómlegri með því að láta hann vera getinn af heilögum anda, var þessu breytt og hann talinn fæddur áður en þau gengu í hjónaband. Fingra- förin eftlr þá breyting eru enn glögg á guðspjallinu. Það er öllum ljóst, sem þetta hafa rannsakað af alvöru. Báðar ættar- tölurnar virðast því upphaflega hafa talið Jesúm vera son Jósefs. — Þetta styrkir marga í þeirri sannfæringu, að upp* haflega hafi verið litið svo á í kristninni, að Jesús hafi verið getinn og fæddur með venjulegum, eðlilegum hætti. Jósef hafi
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.