Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1927, Blaðsíða 68

Eimreiðin - 01.07.1927, Blaðsíða 68
260 GRÆNA F UGAN eimreiðin Ekkert dugði. í örvæntingu sinni fór Iæknirinn út til að ganga sér til hressingar, hugsa málið og ráðgast um (iað við vitringa þorpsins. En til þeirra sótti hann engin ný ráð, og ekkert dugði heldur þó að bæði sýsluskrifarinn og lögreglu- stjórinn væru sendir að sjúkrabeðinum. Húsmóðirin var þar jafnan fyrir til að koma í veg fyrir allar brellur læknisins, og hún lét ekkert tækifæri ónotað til að herða á þvermóðsku bónda síns. Læknirinn gaf henni ílt auga og gat loks ekki setið á sér að atyrða hana. »Getið þér ekki haldið yður saman og hætt að grípa fram í!« sagði hann. »Hverjum tekur sárt til sinna«, svaraði hún hvatskeytslega og sneri upp á sig. ]ón Gal flýtti sér að koma í veg fyrir rimmu. »Vertu ekki svona æst, Kriska. Sæktu heldur flösku af víni handa gestunum*. »Úr hvaða tunnu?« spurði hún. »Úr tvö hundruð potta tunnunni. En í erfisdrykkjunni eftir mig er bezt að tappa af þrjú hundruð potta tunnunni. Það er að verða súrt í henni«. Hann var alveg sáttur við þá hugsun, að hann ætti nú að hverfa yfir um. Gestirnir drukku og fóru svo burt, svo hann gæti búið sig undir dauðann í friði. Úti í garðinum mætti Birli læknir kaupamanninum, ungum og kátum, þrekvöxnum pilti, sem sýndist til í alt. »Hafið vagninn til. Ég legg af stað eftir hálftíma«, sagð' læknirinn. »Og segið frú Gal, að ég bíði ekki eftir kvöldverði*- Fyrir utan garðshliðið staðnæmdist hann og var í vafa um, hvað hann ætti nú að taka til bragðs. í gegnum rifurnar a hliðinu sá hann kaupamanninn ganga upp til húsfreyju. Hann gat ekki annað en veitt eftirtekt ástleitninni í svip hennar o5 dirfskulegum tilburðum hans, meðan þau töluðust við. Það var auðséð, að þau léku með eld, og að einhver samdráttur var a milli þeirra. Nú reið á að fá nánari upplýsingar. Það hlaut að vera einhver spákerling í þorpinu, sem vissi um öll ástar- æfintýri þorpsbúa og verzlaði með ástalyf. Sýsluskrifarim1 mundi vita um það. Og læknirinn átti kollgátuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.