Eimreiðin - 01.07.1927, Side 35
eimreiðin
TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON
227
ar skoðunar, að unt sé að neita því, að meyjarfæðing kunni
að vera möguleg. Ég hef margtekið það fram, bæði á prenti,
og auk þess hvert sinn í háskólanum, er ég hef farið yfir
forsöguna í Matteusi. I þrem prédikunum í »Arin og eilífðin*
hef ég komist inn á þetta efni og einni ræðu, sem prentuð
or í »Kirkjan og ódauðleikasannanirnar«. Ég er nákvæmlega
sömu skoðunar enn. Þeir, sem vilja kynna sér, hverju ég hef
haldið fram, geta lesið þær ræður. Aðalástæðurnar fyrir því
eru í sem fæstum orðum þessar: Ég trúi því með Páli og
]óhannesi, að Jesús hafi átt fortilveru, hann hafi komið úr
Suðlegri dýrð, oss til hjálpar og frelsunar. Og með því að ég
trúi því, hvernig ætti ég þá að neita því, að hugsanlegt sé, að
svo máttug vera — eða aðrar máttugar verur — hafi haft það
vald yfir efninu, að hún hafi með eins konar skapandi mætti getað
hrundið af stað myndun fóstursins í móðurkviði. Vér vitum minna
en það, að vér séum færir um að neita slíku. A vorum tímum
er viturlegast að fullyrða ekki of mikið um, hvað sé mögulegt.
Mér hefur oft fundist, að í þessa átt gætu jafnvel orðin hjá Lúkasi
bent: »Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta yfir-
shyggja þig, fyrir því mun og það, sem fæðist, verða kallað
heilagt, sonur Guðs«. Ég hygg meita að segja, að varfærnir
vísindamenn mundu ekki vilja fullyrða í nafni vísindanna, að
nieyjarfæðing sé óhugsanleg. Og ég leyfi mér að minna á, að
fyrir nokkurum árum setti hinn ágæti vísindafrömuður og
hristni spekingur Sir Oliver Lodge fram þá skoðun sína á
hessu atriði, að það kunni að hafa skift nokkuru fyrir Jesúm,
að jarðneskur líkami hans væri aðeins runninn frá jarðneskri
Wóður. Sál hans kunni að hafa notið sín betur gegnum slíkan
h'kama, gleymskan um fortíðina og hið æðra lífið orðið minni.
Og nú neyðist ég til að benda á eitt atriði þeirrar villutrúar,
sem mér er borin á brýn í ritlingi einum, sem gefinn var út
fyrir skömmu. Það er það, að ég skuli halda fram fortilveru
Érists. Og þá kenning ætlar höfundur ritlingsins, að ég hafi
fengið frá guðspekingum eða spíritistum. Mér liggur við að
brosa, þegar ég les aðra eins árás á mig eins og þetta. Síð-
an ég fyrst fór að kynnast N. tm., hefur mér verið ljóst, að
bæði ]óhannes og Páll halda fram þeirri kenning, eins og ég
bef þegar sýnt fram á. Enginn hefur þó haldið þeirri kenn-