Eimreiðin - 01.07.1927, Page 53
eimreiðin
TVÆR RITGERÐIR
245
Langt mál og fróðlegt mætti rita til þess að sýna, hversu
þrálátlega hinir framliðnu eru að leitast við að segja frá því, að
þeir lifa eftir dauðann líkamlegu Iífi á öðrum stjörnum, og er
•lt til þess að vita, hve illa gengur þar að koma fram hinum
rétta skilningi. The world is out of joint, segir Hamlet — í
hinu fræga leikriti —; heimurinn er úr liði, (ekki í þeim skorð-
um, sem þarf að vera); og svo mun verða, unz fengin er þekk-
lnS á undirstöðulögmálum lífsins. Þá fyrst verður auðið að
homast á þroskaleið og láta rætast hina dýrðlegu möguleika
tilverunnar.
2. sept. '21.
Baráttan um olíuna.
Eftir Skúla Skúlason.
Notkun vélanna og hinna bundnu náttúruafla er lang-
tterkasta sérkenni síðustu aldar mannkynssögunnar. Fyrir þá
sök eina hefur mannkynið tekið stærra stökk í verklegri
^enning á einni öld en í allar þær aldaraðir, sem liggja milli
frumþjóðalífsins og menningar Evrópuþjóðanna í byrjun 19.
aldar. Afl mannsins og hestsins, sem fram að þeim tíma var
nálega eina orkulind þjóðanna, er að eins örlítið brot af þeirri
orku, sem nú þjónar mannkyninu í verksmiðjum, samgöngu-
fækjum, daglegri iðju og á öðrum sviðum. Bundin orka hefur
uð vísu frá ómunatíð verið notuð sem ljós- og hitagjafi, alt
rá ^ví að menn Iærðu að kveikja eld. Síðasta öld fékk henni
annað stærra verkefni til viðbótar.
Menn lærðu fyrst að nota orku vinds og rennandi vatns;
j e|*a var næst hendi, því að hægt var að nota kraftinn bein-
, ' ls; þessar orkulindir voru staðbundnar og dutlungafullar.
® aöldin á þeim ekki uppruna sinn að þakka. Rúmtaks-
au ning vatns við upphitun var upphafið að tilraunum Papíns,