Eimreiðin - 01.04.1930, Page 38
134
SKÍÐAFÖR í ALPAFJÖLLUM
EIMREIÐIN
af þökum kaffeníra bjálkakofanna. Þar er harðsnúinn Norð-
maður, sem tekur 50 metra skíðastökk eins léttilega og þegar
kría steypir sér eftir síli, En á kvöldin stendur hann uppi á
stóli í bjálkakofanum okkar og syngur norskar spilamanns-
vísur svo falskt, að allir tárast af hlátri.
Niðri í Innsbriick mætir maður mjóleggjuðu ferðafólki. Það
drekkur ölkelduvatn í pottatali, til að styrkja taugarnar, skiftir
um föt þrisvar á dag, ber á sig olíur og hnotvatn til að
dekkja húðina, fær sér svo breiðleitan Tíról-strák til að draga
sleða sína eitthvað upp í brekkurnar. Um miðjan daginn horfa
þessir meinleysingjar á einhvern skautagarp hoppa yfir röð
af tunnum, en á kvöldin er skeggrætt um, hver hafi verið
fínastur um daginn. Því fyrir fólk þetta eru búin til marglit
föt og rafmagnshitaðir nefpúðar.
Land mitt við heimskautsbaug má hrósa happi yfir því, að
ár þess verða ekki allar brúaðar og að nefpúðafólk þetta
mundi víla fyrir sér að sofa í tjaldi uppi í óbygðum, þar sem
klakinn fer aldrei úr jörðunni alt sumarið. En ef einhvern-
tíma verður of þröngt um vini okkar ofan af hásléttum Alpa-
fjalla, munu hjarnbungur Hofsjökuls og Kerlingarfjalla verða
athvarf þeirra. Með það fyrir augum vildi ég stofna félag
fjallamanna íslands, en það yrði félag þeirra, sem telja ekki
spor sín og leggja vilja eitthvað verulegt í sölurnar til að
ryðja brautir fyrir vaknandi æsku. Væri ef til vill æskilegt,
að fjallafólk þetta væri deild í Ferðafélagi íslands, sem hefur
víðtækar ferðaáætlanir á stefnuskrá sinni. Með samvinnu við
Þýzk-austurríska fjallafélagið og félagið »Toppen* í Noregi
mætti vinna stórvirki á skömmum tíma.
Heill á fjöllum!
Guðmundur Einarsson
frá Miðdal.