Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1930, Page 54

Eimreiðin - 01.04.1930, Page 54
150 ÞJÓÐABANDALAGIÐ TÍU ÁRA EIMREIÐIN Costa Rica eru ekki talin hér, því þau hafa gengið úr banda- laginu aftur. Það nær nú yfir 3/4 allra íbúa jarðarinnar, og sem stendur eru það aðeins ríkin Afghanistan, Brasilía, Costa Rica, Ecuador, Hedjas, Island, Meksiko, Tyrkland, Banda- ríkin, Rússland og Egyptaland, sem ekki eru meðlimir þess. Þó hefur stundum verið samvinna með Þjóðabandalaginu og sumum þeirra ríkja, sem utan við það standa. Aðalhlutverk bandalagsins er að halda uppi friðnum, og verður ekki annað sagt en því hafi tekist það vel, þegar tekið er tillit til þess við hve mikla örðugleika hefur verið að etja. Hvað eftir annað hefur bandalagið fengið til meðferðar deilu- mál milli ríkja, sem hefðu Ieitt til vopnaviðskifta, ef banda- lagið hefði ekki verið til að koma á sættum. Hér er ekki rúm til að nefna nema fáein þessara mála, og þau aðeins að nafninu. Álandseyjadeilart 1920—1922. Finnland varð, eins og kunn- ugt er, sjálfstætt ríki upp úr rússnesku stjórnarbyltingunni. En um sama leyti og Finnar lýstu yfir sjálfstæði sínu fóru Alend- ingar þess á leit að mega ganga á hönd Svíum. Alendingar eru um 26000 að tölu, tala sænsku og eru af sænskum ætt- um, enda höfðu eyjarnar ásamt Finnlandi talist til Svíþjóðar fram að árinu 1809. Sænska þjóðin var því mjög fylgjandi, að Álendingar fengju að sameinast Svíum aftur, en Finnar neituðu. í júní 1920 fór finski forsætisráðherrann sjálfur til eyjanna til þess að fá eyjarskeggja til að gangast undir finsk lög, en Álendingar neituðu. Þá létu Finnar taka tvo foringja Álendinga höndum, og voru þeir ákærðir fyrir drottinsvik. Síðan sendi finska stjórnin þrjár finskar herdeildir til eyjanna með vélbyssur og önnur hergögn. Sænska stjórnin mótmælti þessum gerðum, en finska stjórnin svaraði því einu, að hún hefði farið í öllu rétt að og lögum samkvæmt, enda væri hér um innanríkismál að ræða, sem engum kæmi við nema Finn- um. Var þá sænski sendiherrann í Helsingfors kallaður heim, og var ekki annað fyrirsjáanlegt en að til ófriðar mundi draga með Svíum og Finnum. Þá var það að Þjóðabandalagið greip fram í fyrir milli- göngu Cursons lávarðar, þáverandi utanríkisráðherra Breta, setti nefnd sérfræðinga í málið, og kom á sættum milli Finna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.