Eimreiðin - 01.04.1930, Blaðsíða 56
152 ÞJÓÐABANDALAGIÐ TÍU ÁRA eimreiðin
í ítalskt skip, sem skyldi flytja þau heim til Ítalíu. Gríska
stjórnin sá sér ekki fært að auðmýkja sig eins djúpt og
ítalska stjórnin heimtaði, en lofaði hinsvegar að uppfylla sum
skilyrðin. Út af málinu urðu miklar æsingar, og lá við styrjöld,
þegar Þjóðabandalagið kom til sögunnar og gat komið á sættum.
Memel-málin, út af borginni Memel og héraðinu við mynni
Niemen-árinnar.
Deilan milli Tyrklands og Iraks um Mosul-héraðið.
Deilan milli Póllands og Tékkóslóvakiu um Jaworzinu.
Landamæradeilan milli Austurríkis og Ungverjalands 1922.
Grísk-búlgarska deilan 1925, þegar grískar herdeildir gerðu
innrás í Bulgaríu, og formanni ráðsins í Þjóðabandalaginu
tókst með snarræði að koma í veg fyrir blóðsúthellingar.
Loks má nefna deiluna milli ríkjanna Boliviu og Paraguay
í Suður-Ameríku árið 1928, sem var útkljáð af Þjóðabanda-
laginu og Al-ameríska sambandinu í félagi. Alls eru það milli
20 og 30 deilumál milli ríkja, sem Þjóðabandalagið hefur leitt
til lykta á friðsamlegan hátt, síðan það tók til starfa. Hefur
það þannig hvað eftir annað afstýrt síyrjöld.
Auk þessara mála, sem Þjóðabandalagið hefur sjálft leitt til
lykta, hefur alþjóðadómstóllinn dæmt í ýmsum mikilvægum
deilumálum, en hann er sjálfstæð stofnun innan bandalagsins.
Hefur hann alls haft yfir 30 slík mál til meðferðar. Hingað
til hefur dómurinn aðeins komið saman, þegar mál lágu fyrir,
sem kröfðust úrlausnar, en árið sem leið var sú ákvörðun
tekin, að dómurinn skyldi framvegis sitja alt árið. Jafnframt
hafa Bandaríki Norður-Ameríku gerst einn aðilinn í dómnum,
og bendir það ásamt fleiru til þess, að ekki muni þess langt
að bíða, að þetta stórveldi gangi í Þjóðabandalagið.
Annað aðalverkefni Þjóðabandalagsins hefur verið að koma
skipulagi á fjárhagsmál Evrópu, sem öll voru í hinni mestu
óreiðu í ófriðarlokin. I því skyni kallaði ráðið saman sérstakan
fund í Briissel árið 1920, til þess einkum að komast að fastri
niðurstöðu um fjárhagsástandið. Fyrsta stórmálið, sem þurfti
að leysa, var að reisa við fjárhag Austurríkis, sem var komið
að því að verða gjaldþrota. Bandalaginu tókst að útvega
Austurríki lán, að upphæð 26 miljónir sterlingspunda, og var
því ráðstafað undir eftirliti sendiherra bandalagsins í Vínar-