Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1930, Page 61

Eimreiðin - 01.04.1930, Page 61
CIMREIÐIN ÞJÓÐABANDALAGIÐ TÍU ÁRA 157 um varnir gegn farsóttum. Meðal annars hefur það komið á fót stöð í Singapore, þar sem eingöngu er unnið að því að rannsaka hinar skæðu farsóttir, sem eiga upptök sín í stór- borgum Asíu, svo sem kóleru og bólusótt, safna skýrslum um þaer, og útbreiða þekkingu á vörnum gegn þeim. Það hefur komið á vísindalegri samvinnu um að finna lausn á Ýmsum erfiðustu viðfangsefnum læknisfræðinnar, heldur uppi rannsóknum á því, hvernig sigrast megi á sívaxandi böli kyn- ferðissjúkdóma, krabbameins og annara þeirra meina, sem mannkyninu stendur mest ógn af nú á dögum. Rochefeller- stofnunin hefur lagt fram stórfé til þessara mála, og auk þess hefur Þjóðabandalaginu borist fjárstyrkur víðar að til þess að koma heilbrigðismálum heimsins í sem bezt horf. Barátta Þjóðabandalagsins gegn nautn ópíums og annara deyfilyfja hefur enn sem komið er borið minni árangur en til var ætl- ast. Fjársterk félög, sem standa á bak við sölu deyfilyfjanna, hafa gert sitt til að spilla fyrir árangri af starfi bandalagsins, °2 eftirlitið með því, að smyglun geti ekki átt sér stað, er afar-erfitt. Hinsvegar hefur verið safnað ítarlegum upplýsing- um í málinu, svo bandalagið er nú miklu betur sett en áður í baráttunni gegn þessu heimsböli. Árið 1926 samþykti Þjóða- bandalagið sáttmála um þrælahald. Það hafði komið í ljós að ' sumum nýlendum stórveldanna var þrælahald enn við lýði. Með sáttmála þessum skuldbundu ríkin sig til að berjast fyrir bví, að þessi smánarblettur yrði sem fyrst þveginn af þjóðun- um. Þetta hafði meðal annars þann árangur, að í brezku ný- lendunni Sierra Leone voru yfir 200.000 þrælar látnir lausir skömmu eftir að sáttmálinn gekk í gildi. Áður en Þjóða- bandalagið var stofnað, höfðu félög sjálfboðaliða risið upp víða um lönd til þess að berjast gegn hinni svonefndu hvítu brælasölu. Hvað eftir annað hefur það komist upp, að ungar stúlkur frá Evrópu hafa verið gintar frá heimilum sínum og seldar til ólifnaðarstöðva í stórborgum annara heimsálfa, eink- Um til Asíu og Suður-Ameríku. Það er fyrst eftir að Þjóða- bandalagið tekur að sér að berjast gegn þessari svívirðu, að veruleg von er um árangur. Áður skorti samvinnu milli þjóð- anna um að koma í veg fyrir söluna, en nú er sú samvinna ^engin. Sama er að segja um ráðstafanir bandalagsins til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.