Eimreiðin - 01.04.1930, Blaðsíða 71
eimreiðin
OQ LÓTUSBLÓMIÐ ANGAR ...
167
er um í sunnudagaskólanum, hinum góða guði á himnum,
sem hjálpar öllum sínum vinum, þegar þeim mest á liggur
(og gefur þeim eplaköku í langsoltinn munninn, þegar þeir
eru dánir). Og þá steig upp frá hinu sorgmædda brjósti litla
drengsins fátæka þannig hljóðandi bæn til guðs föður almátt-
ugs, skapara himins og jarðar: Ó, góði guð á himnum, þú
sem leiddir spámanninn Abraham út úr Kanaanslandi og inn
í Egyptaland og þaðan aftur inn í Gyðingaland og lézt koma
gat á Rauða hafið ... og þeir fóru í gegn um gatið ... nú
bið ég þig að líta í náð niður til mín, lítils drengs, sem trúir
á þig, og senda mér fimtán sent fyrir son þinn ]esúm Krist,
sem með þér lifir og ríkir um aldir alda, amen.
En Guð er miskunnsamur gagnvart saklausum, hreinum
hjörtum, sem tilbiðja hann í anda og sannleika og skrópa
ekki í sunnudagaskólanum, og ekki hafði hann lokið hinu
síðasta bænarorði fyr en staðnæmist fyrir framan hann feikna-
lega skrautlegur Roll’s Royce, og við stýrið situr ákaflega
^ögur, prúðbúin og göfugleg stúlka, og við hliðina á henni
afar-höfðinglegur og góðlegur herramaður, sem leit út fyrir
að vera faðir hennar. Stúlkan opnaði vagnhurðina, ávarpaði
Mla fátæka drenginn og sagði:
— Af hverju ertu að skæla, góði minn?
— Ég misti pokann minn, hrein drengurinn. En ég vona,
að algóður guð, sem hefur skapað himin og jörð, vilji hjálpa
mér af því mér hefur gengið svo vel í sunnudagaskólanum.
— Hafðu engar áhyggjur, litli vinur minn, sagði stúlkan.
Quð hjálpar öllum drengjum, sem hjálpa sér sjálfir, einkan-
lega ef þeir halda áfram að vera guði hlýðnir og góðir við
hana mömmu sína og sækja sunnudagaskólann. Guð hefur
heyrt bænir þínar í kvöld, litli vinur minn, og honum hefur
bóknast að nota mig sem verkfæri í hendi sinni til að upp-
fylla bæn þína. Hérna skal ég gefa þér heilan dollar. En þú
verður að fara vel með hann.
Þannig hjálpar guð vinum sínum, börnin góð, endar sagan.
Nú skulum vér athuga, hvern lærdóm vér getum dregið út
af slíkri sögu, sálum vorum til uppbyggingar, o.s.frv., o.s.frv.
En auðvitað er þetta lygasaga. Því litla drengnum datt ekki
einu sinni í hug að biðja til mannsins í tunglinu og þaðan