Eimreiðin - 01.04.1930, Blaðsíða 91
eimreiðin
BAYARD TAYLOR
187
háskólastúdentar og bæjarbúar í íþöku. Aðra flokka fyrirlestra
um þýzkar bókmentir, fornar og nýjar, flutti hann við Cornell-
háskóla 1871, 1875 og 1877. Batt hann vináttu við ýmsa kenn-
ara háskólans svo sem Willard Fiske, hinn mikla íslandsvin.
Fyrirlestra um þýzkar bókmentir flutti Taylor einnig við aðrar
æðri mentastofnanir í Vesturheimi.
A nú við að ræða nánar komu Taylors á þjóðhátíðina. Fór
hann þá ferð, eins og margar aðrar, sem fréttaritari stór-
blaðsins »Tribune«. Um ferðalagið sendi hann blaðinu tólf
löng bréf. Fjölluðu þau eigi aðeins um þjóðhátíðina, heldur
jafnframt um sögu Islands, landshætti og menningu þjóðar-
innar. Sá Taylor, sem rétt var, að slíkar upplýsingar voru
lesendum hans bráðnauðsynlegar, ætti þeim að skiljast, hversu
þýðingarmikill atburður þjóðhátíðin var. I bókarformi eru
bréfin alls um hundrað og þrjátíu blaðsíður. Komu þau út
1874 í ritinu Egypt and lceland, en fyrstu mánuði þess árs
hafði Taylor dvalið í Egyptalandi og ritað ellefu bréf þaðan,
sem eru fyrri hluti bókarinnar.
Sannarlega valdist góður maður til íslandsfararinnar þar
sem Taylor var. Að undanteknum tveim eða þrem Ianda
sinna, var hann eflaust hæfastur þeirra til slíks. Hann hafði
sýnt það á fyrri ferðum sínum, að hann var gæddur mikilli
athugunargáfu og sanngjarn mjög í dómum. Hann hafði
framúrskarandi glögt auga fyrir öllu sérkennilegu og var laus
við þann gaHa margra fréttaritara að ýkja frásögn sína. Þar
við bættist, að Taylor hafði ungur að aldri tekið ástfóstri við
Norðurlönd og bókmentir þeirra, eigi sízt sögurnar. Sótti
hann til Norðurlanda efni í sum kvæði sín. Og »Friðþjófs-
sögu« Tegners, í heild sinni, gaf hann út fyrstur manna í
Vesturheimi. Taylor ferðaðist víða um Norðurlönd á árunum
1856—1857 og ritaði um þá ferð bókina Northern Travel.
^ar hann málamaður mikill, hafði ágætt vald á sænsku, kunni
dönsku sæmilega og hafði lært eitthvað í íslenzku hjá C. C.
Rafn í Kaupmannahöfn, gat að minsta kosti lesið hana. Hélt
Taylor æfilangt trygð sinni við Norðurlönd. Ber að muna
hann sem brautryðjanda í því að kynna þau, sögu þeirra og
Wenning meðal landa sinna.
Taylor kom hingað til lands á litlu gufuskipi, er Albion hét.