Eimreiðin - 01.04.1930, Page 109
eimreiðin
RAUÐA DANZMÆRIN
205
að þektur sé út í æsar hinn þáttur lífs hennar, listarstarf-
semin, sem hún sjálf nefndi svo.
Njósnarinn H. 21.
Til þess að skilja, hvernig Mata Hari vann sín undraverðu
afrek, verður að gefa nokkra lýsingu af heimboðum hennar,
því með þeim lagði hún grundvöllinn að því mikla valdi, sem
hún hafði yfir mönnum í ábyrgðarmiklum stöðum, og öðrum
tisnustu meðlimum þjóðfélagsins. Veizlur hennar fóru fram í
skrautlegum einkasölum, þar sem munaður líðandi stundar rak
alla varúð á flótta. Við ríkulegar drykkjarfórnir og mjúk hæg-
indi sátu hinir útvöldu gestir og aðdáendur umhverfis hana til
hess^að hlusta á hana segja frá bernsku sinni og æsku.
/’Eg er fædd á Suður-Indlandi«, var hún vön að byrja í
nijúkum, seiðandi málróm, sem gestirnir settu undir eins í
samband við hin leyndardómsfullu heimkynni hennar í Austur-
löndum. »í hinni helgu borg Jaffnapatam á Malabarströndinni
leit ég fyrst dagsins ljós. Foreldrar mínir voru úr flokki hinna
heilögu Brahmina. Vegna guðsótta síns og hjartahreinleika
var faðir minn kallaður Assirvadam, sem þýðir: Blessaður af
9uði. Móðir mín var hofgyðja í musteri Kanda Swany. Hún
dó fjórtán ára gömul, sama daginn og ég fæddist. Prestarnir
1 musterinu greftruðu móður mína, en tóku mig í fóstur og
skírðu mig Mata Hari, sem þýðir: Dagsbrún. Frá því fyrsta
að ég man eftir mér, var ég lokuð inni í neðanjarðarsölunum
undir musteri Siva. Þar var ég uppfrædd í hinum heilögu
lákndönzum trúar minnar, svo að ég gæti tekið við starfi
uióður minnar við musterið. Eg man eftir því, þótt óljóst sé,
hve bernska mín var tilbreytingarlaus. Eina tilbreytingin voru
kenslustundirnar á morgnana, er ég var æfð í danzi hofgyðj-
unnar og hreyfingum. Og á kvöldin fékk ég að ganga um í
garðinum og flétta blómsveiga til þess að skreyta með ölturin.
Undir eins og ég var orðin kynþroska var ákveðið að helga
"lig guðinum Siva, því prestarnir töldu mig endurholdgaða
sál, útvalda til þeirrar vígslu, og hafði fóstra mín valið nótt
Sakty-pudja þá um vorið, til þess að opinbera mér leyndar-
dóma trúarinnar og kærleikans ... «
Mjúk, dreymandi röddin deyr út, og við endurminninguna
u>u þessa sæluríku stund fer trúarkendur hrifningarskjálfti um
smurðan og ilmþveginn líkama hennar, sem er tiltakanlega
*|tt klæddur í tilefni af þessari framsögu um heilaga æsku.
Svo vaknar Mata Hari skyndilega aftur úr sæludvalanum
°9 spyr:
, Hefur nokkur ykkar hugmynd um hvað Sakty-pudja guðs-
lus Kanda Swany er? Framh.