Eimreiðin - 01.04.1930, Blaðsíða 112
208
VÍÐSJÁ
EIMREIDIN
sannað með lilraunum, að Röntgens-
geislar, sem eru svipaðs eðlis og
gamma-geislar, valda breytingum á
líffærakerfum, ef geislunum er beint
á frymið. Á sama hátt ættu breyt-
ingar á geimgeislunum að koma
fram í breytingum á lífsfryminu hér
á jörðunni. Dr. Joly telur því heim-
ilt að álykta sem svo, að krabba-
meinsplágan, sem nú geisar, stafi
af rýrnun geimgeislamagnsins á
jörðina. Lífið á jörðunni hefur ekki
enn haft tíma til að samlaga sig
þessari breytingu, samkvæmt lög-
málum náttúruvalsins.
Ef þessi tilgáta um uppruna og
orsök krabbameins skyldi reynast
rétt, þá fæst skýring á því, hvers-
vegna veikin hefur aukist svo gíf-
urlega upp á síðkastið. Hún skýrir
einnig, hversvegna læknismeðferð
gamma-geisla kemur stundum að
haldi. Með gamma-geislunum tekst
þá að færa líffærið, sem meinið er
í, aftur til síns fyrra ástands. Það
er að vísu ekki hægt að sanna enn
sem komið er, að geimgeislanin sé
breytileg. En það er alls ekki ó-
vísindalegt að gera ráð fyrir slíku.
Breytingin getur auðveldlega or-
sakast af hreyfingu sólkerfis vors
um rúmið. Því nú vita menn, að
sólkerfið hreyfist alt í heild til
ákveðinnar áttar. Geimgeislarnir
eru eðlilega sterkastir í grend við
sólnahöfin miklu, því þar er upp-
spretta þeirra að áliti dr. Millikans.
Stjörnufræðingarnir segja, að sól-
kerfið sé á langri ferð í áftina að
ákveðnum sfað í geimnum, og hraði
þess á ferðinni er talinn geisimikill.
Það er því líldegt, að jörðin sé
nýlega komin út úr belti, þar sem
geimgeislarnir voru sterkir. Hin sí-
aukna útbreiðsla krabbameins stafar
af þessum breyftu skilyrðum. Sé
þetta rétt, er ekkert líklegra en
mannkynið eigi fyrir höndum erfiða
tíma, meðan það er að komast í
fult samræmi við umhverfið aftur.
Hinsvegar er ekki gott að segja
nema vér eigum eftir að mæta
svipuðum skilyrðum og þeim, er
réðu áður en tók að draga úr geim-
geislaninni. En ekki er unt að vita,
eins og nú er háttað þekkingu vorri
á þéssum málum, hvor leiðin liggi
oss nærri.
Eins og sjá má á þessari frá-
sögn af ályktunum dr. Jolys, hyggur
hann, að krabbameini yrði útrýmt,
ef geimgeislanin yrði meiri hér á
jörðunni en hún er nú. Dr. Milli-
kan hefur látið þá skoðun í ljós,
að ef til vill megi takast að beizla
þessa geisla. Er því ekki gott að
segja nema að innan skams verði
þeim safnað til notkunar við lækn-
ingar, á líkan hátt og sólarljósið er
stundum notað nú. Sv. S.
« *
*
Hvað er líf? í júlí-hefti ame-
ríska tímaritsins „Psychology" 1929
er grein eftir mann að nafni J-
Fox. Setur hann þar fram efíir-
tektaverða kenningu eða tilgátu
um framkomu eða myndun lífsins
og viðhald þess. I forspjalli rit-
stjóra tímaritsins, Henry Knight
Millers, segir á þá leið, að líklegt
megi teljast, að dr. Fox hafi með
þessari filgátu gert mikilsverða
uppgötvun og viðbót á sviði vís-
indanna. Hugsun sína táknar dr.
Fox með orðinu „Vition“, er ég vil
nefna lífvaka, og skýrir því næst
hvað í því felst. Hugsar hann sér
lífvakann sem þriðja frum-þátt til-
verunnar, sambærilegan við orkuna