Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1930, Page 124

Eimreiðin - 01.04.1930, Page 124
220 RITSJÁ EIMREIÐIN arið 1928. í einni þeirra lýsir hann þróunarferli sjálfs sín. Það er ræða sú, er hann hefur einkent með fyrirsögninni: Leitin. Hann skýrir þar frá því, hvernig hann hafi, alt frá því hann var barn, verið í uppreisnarhug og leitað að sannleikanym, án þess að reiða sig á nokkurn mann, kynst allskonar fólki, verið í uppreisnarhug „við guðspekingana, með alt orða- tildrið, kennisetningarnar, fundahöldin og útskýringarnar á lífinu", án þess að hann fyndi nokkursstaðar hamingjuna. „Ég gekk um strætin og virti fyrir mér andlit fólksins, og fólkið horfði á mig, ef til vill með enn meiri athygli. Ég kom í leikhúsin, ég sá hvernig fólkið skemti sér og reyndi að gleyma vansæld sinni. Það hugðist að leysa vandræði sín með því að örva huga og hjarta í yfirborðshrifningu. — Ég sá fólk, sem fór með völd í stjórnmálum, í þjóðfélagsmálum, í trúmálum, og þó vantaði það þetta eina nauðsynlega — hamingjuna. Ég kom á verkamannafundi og kommúnistafundi og hlustaði á það, sem Ieiðtogar þeirra sögðu. Oftast voru þeir að mótmæla einhverju. Þeir náðu athygli minni, en fullnægðu mér ekki. Með því að athuga eina tegund manna eftir aðra, náði ég reynslu gegn um þær allar. I öllum var innibirgður eldur óhamingju og óánægju. Ég fór frá einni skemtun til annarar, frá einum fundi til annars í leitinni að hamingju og fann hana ekki. Ég horfði á gleðskap unga fóiksins, danzana, klæðnaðinn, óhófið, og ég sá að hamingjuna vantaði, — hamingjuna, sem eg var að leita að. Ég sá fólk, sem átti fátt í iífinu og vildi sundra því, sem aðrir höfðu bygt. Það hugði, að úrlausnin fynd- ist með því að rífa niður og byggja öðruvísi en áður. Sömuleiðis það var óánægt". Þessi heimshrygð hverfur ekki fyr en Krishnamurti finnur takmark sitt, Ástvininn, sem hann svo nefnir, en „sá Ástvinur er lífið, sem er í öllu“. Ræðurnar í þessari bók fjalla meira og minna um þenna Ástvin, sem Krishnamurti nefnir svo. Því verður ekki neitað að sumt af því, sem hann Iætur eftir sér hafa t. d. um guðshugtakið, bænina og kirkjuna, kemur óþægilega við marga. En við nánari athugun má finna fullkominn persónuleika bak við orðin, sem réttlætir þau. Og hvernig sem menn annars kunna að líta á starfsemi Krishnamurtis, þá verður því ekki neitað, að margt það, sem hann flytur, snertir þá strengi í sálum vorurn. sem bezt eru stiltir í samræmi við lífið í sinni fegurstu og fullkomnustu mynd. Boðskapur hans er fyrirheit um mátt einstaklingsþróunarinnar, á- byrgðartilfinningarinnar, sjálfstamningarinnar. Hann flytur sannleika — í rauninni ekki annað en gamlan og ýmsum augljósan sannleika — um það, að hamingjan búi í voru eigin brjósti. Það er enginn vandi að benda á þetta, en hitt er meiri vandinn að lifa það. Og í því virðist gildi Krishnamurtis fólgið, að hann sé kominn til að þrýsta því á meðvitund mannanna enn betur en áður, að hver einasta mannssál verði ein og óstudd að brjótast upp úr viðjum ófullkomleikans til æ fyllri og gðfugri þroska.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.