Eimreiðin - 01.07.1931, Blaðsíða 64
264
BLONDUN STEINSTEYPU
eimreiðin
haldið votri í 4 mánuði, þá er hún 207°/o sterkari en sama
steypa, sem látin er vera frá byrjun í þurru lofti og ekki vætt.
Að halda steypunni votri gefur ekki einungis sterka steypu,
heldur er það einnig mjög þýðingarmikið til þess að fá vatns-
þétta steinsteypu. Og það gerir steinsteypu mikið haldbetri
gegn sliti. Það verður að væta steypuna svo fljótt eftir að
hún hefur verið steypt í mótin, að henni gefist ekki tími til
að þorna, og halda henni síðan stöðugt votri í 7 daga. Hent-
ugast er oftast að gera þetta með blautum striga. Hiti er
nauðsynlegur til þess að steinsteypa harðni. í köldu veðri
verður að vernda steypuna frá að frjósa, og steypan þarf að
vera í yfir 10 stiga hita, helzt í 5 daga og að minsta kosti í
þrjá sólarhringa, til þess að hún harðni nægilega.
Hér hefur verið getið helztu atriðanna, sem þarf að taka
til greina við framleiðslu góðrar steynsteypu, og vona ég að
það verði til þess að menn kynni sér reglur, sem til eru um
blöndun og meðferð steinsteypu á erlendum málum. Því
miður munu engar góðar reglur vera til á íslenzku um notk-
un þessa þýðingarmikla byggingarefnis, en vonandi sér ríkið
um, að almenningur eigi völ á þeim innan skamms. Margt
er á ensku og þýzku ágætlega skrifað um blöndun og með-
ferð steinsteypu. Islendingum ber að snúa sér beint til stór-
þjóðanna, þeirra, sem framast standa í verklegum framkvæmd-
um, og fá þaðan þá þekkingu, sem þeir þarfnast á svo mörg-
um sviðum. Yfirleitt má segja, að steinsteypuhús hér á landi
séu mjög illa gerð, við byggingu þeirra virðast oft vanþekk-
ing og hroðvirkni sitja í forsæti. íslendingar virðast alment
hafa þá trú, að steinsteypa sé steinsteypa, hvernig sem hún
er blönduð og með hana farið, — og að hún endist um aldur
og æfi. Það er satt, að steinsteypa er ágætt byggingaefni, ef
hún er svo til búin, að tímans tönn nái ekki að vinna á henni.
Þar með á ég aðallega við, að steypan sé vatnsþétt. Þá get'
ur hún enzt eins vel og blágrýtið á íslandi, en sé aftur a
móti steypan illa gerð í fyrstu, þá er ekki auðvelt að aftra
því, að hún molni sundur, er árin líða.
Jón Gunnarsson.