Eimreiðin - 01.07.1931, Blaðsíða 72
272
ALBERT EINSTEIN
eimreiðin
stjörnuturni árið 1922 og reyndist nálega hárréttur. Þetta
dæmi er aðeins lítið sýnishorn af nákvæmni Einsteins.
En í þessari grein var ætlunin aðeins að lýsa sjálfum
manninum Einstein. Það hefur að vísu ekki verið gert í löngu
máli, en þó nægilega til þess að sýna, að hann er ekki fyrst
og fremst þur og einhliða vísindamaður, eins og rnörgum
mundi gjarnt að álíta, sem komist hefðu lauslega í kynni við
stærðfræðilega útreikninga hans, heldur maður með heitar
og göfugar tiifinningar og ríka listamannslund. Hann er ekki
síður listamaður en vísindamaður. Mannúð, lotning fyrir dá-
semdum lífsins og fögnuður yfir samræmisbundinni fjölbreytru
þess einkennir hann umfram flesta menn. Hann virðist eiga
í ríkum mæli þá dýrmætu gáfu flestra afburðamanna að geta
lifað í samræmi við hið eilífa í tilverunni og sjá alt frá þeim
æðri sjónarhól. Hann hefur með starfi sínu gert vísindin að
fagurfræði og opnað mönnum nýja sýn yfir veröld fulla sam-
ræmis og fegurðar. Það er sagt um hann, að stundum þegar
hann hafi verið að lúka við útreikninga sína, hafi hann hrópað
upp yfir sig í hrifningu: »Hvílík dásamleg Iausn!< Og stund-
um þegar lausnin hefur aðeins verið ófengin eða óprófuð, a
hann að hafa sagt með eftirvæntingu og fögnuði: »Eg vona
að þetta sé rétt hjá mér. Slík lausn sem þessi væri guðdóm-
lega fögur!« Þessi og þvílík orðatiltæki, sem höfð eru eftir
Einstein, sýna listamannseðli hans og fegurðarþrá.
A síðastliðnu vori var Einstein á ferð í Englandi og flutti
þá fyrirlestur við háskólann í Oxford. Konunglega brezka
vísindafélagið sýndi honum við það tækifæri þann æðsta sóma.
sem það kann að veita, og sæmdi hann heiðursmerki sínu
úr gulli. Einstein þakkaði heiðurinn með þessum orðum, sem
lýsa honum ef til vill betur en langorð frásögn: >Mér hefur
veizt mikil náð, þar sem ég hef fengið að skygnast lítillega
inn í hinn eilífa leyndardóm náttúrunnar og jafnframt fengið
að sýna meðbræðrum mínum fund minn. Sá, sem hefur orðið
slíkrar náðar aðnjótandi, getur aldrei nógsamlega þakkað.
En hafi hann, auk þessa, öðlast hjálp, samúð og viðurkenn-
ingu samtíðarmanna sinna, liggur við að hamingja hans se
meiri en svo, að nokkrum einum manni sé fært að bera‘-
Sveinn Sigurðsson.