Eimreiðin - 01.01.1934, Page 30
10
ÍSLAND 1933
EIMREIÐ!N
Útlendar vörur fóru aftur á móti fremur lækkandi. Telst
Hagstofunni að smásöluverð á útlendum matvörum í ReykjaviK
hafi lækkað um 7 °/o, en hækkað á innlendum vörum um 6 °/o-
Vísitala Hagstofunnar um smásöluverðið, miðað við notkun,
hækkaði þó á árinu úr 178 í 180.
Byggingarkostnaður steinsteypuhúsa lækkaði á árinu um
5°/o. — Sparisjóðsvextir lækkuðu í Landsbankanum 1. sept.
úr 4 V2 í 4 og forvextir almennra víxla úr 6 V2 í 6 og vöru-
víxla úr 6 V2 í 5 J/2 °/o.
Viðskiftajöfnuðurinn. Innflutningur á útlendum vörum jókst
stórlega frá því sem var árið áður. Enda var árið 1932 lágt
innflutningsár. Samkvæmt bráðabirgðatalningu námu innfluttar
vörur árið 1933 kr. 44.417.000 og er það rúmum 10 milj. kr.
meira en árið áður. Útflutt var, samkvæmt bráöabirgðatalningu
Gengisnefndar, fyrir kr. 46.845 000 og taldist vera rúmum
2 milj. kr. meira en árið 1932.
Við þessar bráðabirgðatalningar koma ekki öll kurl til
grafar, en af þeim má þó ráða, að verzlunarjöfnuðurinn hefur
ekki verið nægilega hagstæður til þess, að ekki söfnuðust
erlendar skuldir.
Sést þetta og á lausaskuldum bankanna, er voru í ársbyrjun
um 7,6 milj. króna, en í árslok 8,7 milj. Er þessi hækkun
bein afleiðing af auknum yfirfærslum vegna innflutningsins.
Innflutningshöft á ákveðnum vörum voru þó í gildi alt árið,
en virðast hafa komið að litlum notum. Því er haldið fram,
og víst með nokkrum rétti, að þótt tekist hafi að hefta sS
einhverju leyti innflutning á vissum vörutegundum, þá hafi það
vegist upp með því sem flutt hafi verið inn af frjálsu vörun-
um fram yfir það, sem var bráðnauðsynlegt.
Afkoma ríkissjóðs varð, samkvæmt skýrslu forsætis- og fjár-
málaráðherra Ásgeirs Ásgeirssonar í útvarpið 6. marz þ. á.,
miklu betri en árið á undan. Gáfu tollar og skattar rúmum
2 miljónum króna meiri tekjur, er stafaði sumpart frá hinum
stórlega aukna innflutningi og sumpart af sérstökum ráðstöf-
unum til tekjuauka. Höfðu sumir tollar verið hækkaðir, og
svo var tekju- og eignarskattur heimtur inn með 40°/o álagi-
— Tekjur ríkissjóðs urðu samtals 13.308.000 kr., en gjöldin
224.000 kr. minni. — Ný lán voru tekin á árinu, er námu