Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1945, Page 22

Eimreiðin - 01.04.1945, Page 22
118 VIÐ ÞJÓÐVEGINN EIMREIÐIN ingum slepptum, sem enn kunna að verða í tízku um skeið, þá er legu íslands og stöðu á jarðkringlunni þannig háttað, að það er í stöðugri liættu, hvenær sem til heimsstyrjaldar kann að draga. — Og er þá undir ýmsu komið, hvaða stór- veldi verða fljótust til að hernema landið, ef það er varnar- laust fyrir. Sjálfsagt má gera ráð fyrir, að íslendingum gefist kostur á að undirrita stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, þótt síðar verði. Af einhverjmn ástæðum, sem enn eru ekki til fulls kunnar, var ekki talið fært, að íslenzka þjóðin yrði meðal sjálfra stofnendanna að hinum nýju þjóðasamtökum. Fari samt sem áður svo, að við verðum aðilar siíkra samtaka, sem hinu nýja þjóðabandalagi er ætlað að verða, þá tökum við meðal annars á okkur þá kvöð, að við getum hvenær sem er orðið skyldugir til að láta öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í té, ef þörf krefur og í samræmi við sérstakan samn- ing eða samninga, herafla þeim til umráða og veita þeim nauðsynleg forréttindi, þar á meðal rétt til að hafa erlendan her í landinu, ef það kann að reynast nauðsynlegt til varð- veizlu friðar og öryggis. Við berum einnig þann liluta kostn- aðar við bandalag Sameinuðu þjóðanna, sem á okkur yrði lagður. Og ýmsa aðra ábyrgð yrðum við á okkur að taka eins og aðrir aðilar þessara alþjóðasamtaka. Um hlutleysi ís- lands í ófriði er alls ekki framar að ræða eftir undirritun stofnskrár Sameinuðu þjóðanna. Um tvær leiðir virðist vera að ræða fyrir íslenzku þjóð- ina í afstöðu hennar út á við, ef hún hyggst eiga nokkurt frumkvæði í því efni: annaðhvort að skrifa undir stofnskrá Sameinuðu þjóðanna og öðlast um leið þau réttindi og þær skyldur, sem slíku fylgir — eða gera samning við eitt eða fleiri stórveldi um þessi mál. Líklegt má telja, ,að það gæti algerlega orðið á valdi okkar sjálfra, hvor leiðin yrði valin. Síðari leiðin er að því leyti tryggari, að hana myndi að lík- indum hægt að fara nú þegar. Sú fyrri er ekki virk, meðan ekki er búið að ganga nema frá byrjunaratriðunum í hinu nýja bandalagi. Enginn veit enn með vissu, hvort takast muni að koma þessu bandalagi á, þó að allir, sem bera heill mann- kynsins fyrir brjósti, voni að það takist.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.