Eimreiðin - 01.04.1945, Side 54
150
STRAUMHVÖRF í BÓKMENNTUM
EIMREIÐIN
Meðan vorið færist nær, er það hlutverk rithöfundanna að
undirbúa jarðveginn, gróðursetja vinjar í eyðimörk nútímans og
húa sig og aðra undir að taka á móti vorinu, þegar það kemur:
Þessi skoðun Köstlers einkennir í höfuðdráttum fjölda annarra
rithöfunda samlíðarinnar, þó að sjónarmiðin séu annars marg-
vísleg. Það eru vitaskuld margir, sem ekki treysta sér til að varpa
fyrir borð verðmætum vinstristefnu-ritliöfundanna eins ákveðið
og Köstler gerir. Ágætir höfundar eins og André Malraux telja
sig ekki enn undir slíkt húna. En hjá þeim er ekki lengur að
finna þá leiftrandi bjartsýni og þann eldmóð, sem áður ein-
kenndi verk þeirra. Aflur á móti bergmálar livaðanæfa samúðin
með skoðunum manna eins og Köstlers. Og þó að enn haldi margir
uppi málstað hinnar efnislegu hagsældar Marxismans, sem allt sé
undir komið, þá er síður en svo að þeir neiti mikilvægi hinna
andlegu verðmæta, sem liinir nýju trúmenn rithöfunda og skálda
boða. Rithöfundurinn Harold Laski liefur í bók sinni „Trú,
skynsemi og menning“ lialdið því fram, að eigi mannkynið að
lifa af, verði það að öðlast aftur máttinn til að trúa. Og Laski
bendir jafnframt á, að þetta sé eirimitt það, sem bjargað hafi
rússnesku þjóðinni; hún liafi öðlast máttinn til trúar upp úr
þrengingum sínum, og þess vegna geti hún einmitt þar orðið
öðrum þjóðum til fyrirmyndar.
Þannig virðist sú skoðun ryðja sér til rúms, að meiri álierzlu
beri að leggja á trúárvitundina en áður. Trúin hefur í sér falin
eilíf og óforgengileg verðmæti, sein mennirnir verða að læra að
tileinka sér. Þessi verðmæti viðhalda bjartsýninni, þó að þjóðirnar
reyni að tortíma liver annarri í þrotlausum styrjöldum, Hugar-
stefna í þessa átt birtist á margvíslegan hátt hjá rithöfundum
samtíðarinnar, sýnilega lil orðin á flótta þeirra frá þeim hörmu-
lega heimi, sem blasir við í Ijósi styrjaldarinnar. Sá lieimur
virðist þeim óbærilegur og öllu sviptur, sem geri lífið bjart og
fagurt. Hin límanlegu og sýnilegu verðmæti þessa styrjaldarheims
eru öll tortímingunni undirorpin. Og enn á ný leggja veðurvit-
arnir í heimi andans út á ómælisdjúpin til að leita týndra verð-
mæta og bera þau á ný út í birlu og ljós komandi dags.
Sv. S.