Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1945, Page 83

Eimreiðin - 01.04.1945, Page 83
eimreiðin SÆLUHÚSIÐ VIÐ DAUÐAGIL 179 SVIPURINN: Það bannar enginn þér neinar bjargir. Þú féllst á þínum eigin verk'am, en ég stend með mínum. SÁ FANNBARÐI (bendir á rúmin): Þessum þarna ætlaði ég að ná á milt vald í gær. Ilvaðan fékkst þú kraft til að láta þá elta þig hingað? SVIPURINN: Hugsanir lifandi manna gefa mér mátt til að bjarga þeim, af því að þeir hafa áttað sig á, að ég var það, sem ég þóttist vera, og af því, að þær af vörðunum mínum, sem ykkur entist ekki manndómur til að jafna við jörðu, standa ennþá, þeim til leiðbeiningar. En þú ert fyrir löngu veginn og léttvægur fundinn. Þess vegna megnar þú ekki lengur að leiða fólk til glötunar, sem betur fer. SÁ FANNBARÐI (hvœsir): Hrak, hrak. (Gerir sig líklegan til árásar.) SVIPURINN (bandar frá sér): Burt héðan, niður í bælið þitt, og eigðu aldrei aftarkvæmt þaðan. Of margir finnast þínir líkar samt. (Sá fannbarSi hrökklast öfugur út. Vaxandi birta.) BJARNI (rís upp viö olnboga. Fagnandi): Guði sé lof. — Þú ert þá kom- inn aftur. — Hvar hefurðu verið? SVIPURINN: Sofðu, Bjarni — sofðu. BJARNI: Það verðar nú ekkert af því, fyrst að þú ert kominn aftur. Okkur varð svo hverft við, þegar við söknuðum þín í gærkvöld, að við gátum naumast afborið það. SVIPURINN: Sofðu, Bjarni. BJARNI (hallast út af): Það var annars ekkert skemmtilegt, sem mig var að dreyma. Mér þótti einliver gustillur náungi — ég held helzt, að það hafi verið draugur — snarast hér inn úr dyrunum og þruma yfir mér vísu. Ætlaði liann síðan að draga mig fram úr rúminu, en i því kom einhver mér til lijálpar og bægði lionum frá. SVIPURINN: Draumur og ekki draumur, Bjarni. Það var hann, sem týndi af sér níu mönnum hérna í Dauðagilið og fórst sjálfur með þeim. Sagan er sönn, alltof sönn. BJARNI: Viltu ekki fá þér bita, kunningi? Það er matur þarna á borðinu. SVIPURINN: Það var hann, sem hægði hæfum mönnum frá að geta notið sín — og öðrum frá að geta' notið þeirra. BJARNI (fœrir sig til í rúminu): Viltu ekki leggja þig? SVIPURINN: Það var hann, sem með monti, frekju og áhyrgðarleysi tranaði sér fram til starfa, sem hann var óhæfur til að leysa af hendi. SEMINGUR (upp úr svefninum): Hann er vitlaus, — liann er hættulegur. — Rektu helvítið út. Rektu helvítið út. SVIPURINN: Hann er sífellt að fylla Dauðagil með villtra manna líkum. BJARNI: Þú ert yfirfallinn af þreytu, eftir allt erfiðið í gær og nólt. Komdu nú, og leggðu þig hérna lijá mér, kunningi. SVIPURINN: Hann lifir hvarvetna á lognu hóli uin sjálfan sig og lognu niði um aðra. (Bendir á Seming): Þarna er þessi, á leið til höfuðstaðarins, til að láta miðstjórn ómennskunnar sæma sig verðlaunum fyrir einskisvert leirhnoð. Það er allt vandlega ’undirbúið, og tilgangurinn er einkum sá að kveða góðskáldin niður, svo leiruxarnir geti verið einir um hituna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.