Eimreiðin - 01.04.1948, Qupperneq 20
100
BIÐILSKOMAN
EIMREIÐIN
mórinn kannski þurrari en hjá sumum öðruin — og ég er birgur
af slátri og saltfiski frá því í hitt eð fyrra ...“.
Hann ætlaði að segja miklu meira, en Gudda stanzaði orða-
strauminn. Hún var farin að gráta.
„Já, ég hef alltaf óskað, alltaf vonað, að þú kæmir ... Jón —
Jón — ég elska þig“.
Hún leitaði ósjálfrátt að liöndum lians. En Jón hafði komið
þeim fyrir um mitti hennar og þrýsti fast — eins og karlmaður.
Þegar Gudda kom heim í eldhúsið aftur, voru allir setztir að
borði. Húsfreyja var allfasinikil við eldavélina. Grauturinn var
brunninn við, og fiskurinn soðinn í mauk. En að þessu sinni
höfðu ákúrur húsfreyju engin álirif á Guddu. Rjóð í kinnum og
með Ijóma í augum fór liún að bera á horð fyrir hitt fólkið.
Hún lofaði húsfreyju að rausa nokkra stund. Svo gekk liún til
hennar og lagði handlegginn um liálsinn á henni, eins og hún
væri allt í einu orðinn jafningi hennar — og nú í fyrsta skipti
rann það upp fyrir Sigurði fjármanni, sem sat á eldhússbekknum
og skotraði til hennar augunum, að andlit Guddu væri í rauninni
bara snoturt.
„Þú verður að fyrirgefa, góða húsmóðir“, livíslaði hún, en þó
svo hátt að allir gátu heyrt, „það kom piltur að biðja mín“.
Bókasafnið í British IMuseum.
British Museum í London er eittlivert stærsta safn, sem til er í heiminum-
I sjálfu hókasafninu þar eru 3,200,000 hindi hóka og 56,000 handrit. Bóka-
hillur safnsins eru samtals um 90 km. að lengd. Bókasafnið var stofnað árið
1753, en opnað til afnota fyrir almenning árið 1759. Lestrarsalurinn miklh
sem byggður var árið 1857, hefur horð og sæti fyrir um 500 lesendur. Þesiu
mikli liringlaga salur er 140 fet að þvermáli og hvolf lians 106 feta hatt.
hvolfgluggarúðurnar eru skráð nöfn 20 frægustu skálda og rithöfunda, sem
bókmenntasaga Gnglendinga kann frá að greina.
Af öðrum safndeildum í British Museum má nefna höggmyndasafnið,
fornleifasafnið, gimsteinasafnið, myntsafnið og frímerkjasafnið, þar sem me
annarra frímerkja heims eru flest íslenzk frímerki og frímerkjaafbrigði, fra
því fyrsta að byrjað var að nota frímerki hér á landi.