Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1953, Page 24

Eimreiðin - 01.07.1953, Page 24
176 MARLlS EIMREIÐIN áSi eins og sá, sem allt hefur gefiS: œsku sína, hamingju síná auSæfi sín og framtíS sína, án þess aS krefjast neins til haka nema aS fá aS vera í návist þess, sem hann elskar. Ég elskaSi náttúruna, mennina, landiS, en þó mest þig, sólfagra vor! Ég sá þig persónugerva sem ungrney, er speglar heilagt leynd- armál í augum sínum, -—■ sem sameinar sakleysi og þokka 1 lireyfingum sínum, sem ber aSalsmerki göfgi og góSs hjartalags á enni sér. SvoleiSis sá ég þig, vor, og svoleiSis komst þú enn á ný inn í líf mitt. MaSur á þér svo margt aS þakka. Hjá þér safnar maSur kröfl' um til ókominna starfa. Hjá þér hreinsar maSur hugarfar sitt af öllu köldu, dimmu og beisku, sem tími myrkurs og kuldo hefur eftir látiS í sálu manns. Hjá þér lœrir maSur aS vera harn- ingjusamur á ný. Én þaS er skammur vegur milli hamingju og sorgar. Þú hefur Mka blandáS hamingjubikar minn meS sorg, því aS þú dvelW aSeins skamma stund í lífi mínu. Og koma þín veldur mér ekki aSeins hamingju, viS aS mega njóta þín, heldur og sársauka, viS aS missa þig. En þegar þú ert aftur horfin úr lífi mínu, þá áttu eftir varpa bjarma endurminninganna á veg minn, því aS hamingla er sterkari en sorg. En ég nýt þín, á meSan ég hef þig hjá mér. Ég nýt þetts handtaks, sem gefur mér nýjan kraft, hlœjandi augnatillits, sen1 gefur mér nýja gleSi, mýktar og yndis líkama, sem gefur me>' aftur ástina til lífsins. Því aS þú ert ekki aSeins tíminn, heldW líka náttúran, lifiS, konan. — Þú ert þetta allt og þó aSeins eitU sem ég ekki get lýst. En ég get skrifaS nafniS þitt: Marlís. Sveinn Bergsveinsson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.