Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1953, Page 26

Eimreiðin - 01.07.1953, Page 26
Starfsemi Heiðafélagsins danska [Höfundurinn, sem nú er kennari við Héraðsskólann í Skógum undir Eyjafjöllum, ferðaðist sumarið 1952 um Jótland og kynntist þá, af eigin sjón og reynd, hinu mikla þjóðnytjastarfi, sem Heiðafélagið danska hefur unnið á józku heiðunum, þar sem víðáttumiklum lyng- og sand- auðnum hefur verið breytt í skóglendi og annan nytjagróður á tiltölu- lega skömmum tima. Greinin er að mestu leyti minningar frá þessan för höf. um józku heiðarnar. —- Ritstj.] Lestin brunar áfram, og innan skamms staðnæmist hún í Vejle á Jótlandi, en ferðinni er heitið til Viborgar. í Vejle er aðeins stutt dvöl, og brátt yfirgefum við hið frjósama Austur-Jótland. Sléttui' Norður-Jótlands taka við, þar sem korn- ið hrærist á stórum ökrum, en á miH' þeirra standa fagurgræn skjólbelti. Her og þar sjást kýr á beit á grösugum tún- um, en lifandi skjólbelti úr greni °& reyni setja svip sinn á þau. En er norðar dregur ber æ meira á samfelldum skógar- breiðum, og menn trúa því varla, að her hafi verið lyngivaxin heiði fyrir tæpri öld. Og eftirvæntingin vex. þegar lestin nálgast Viborg, því að þar hefur danska heiðafélagið aðalbækistöð sína, og þar er unnt að kynnast því, hvernig manns- höndin breytti þessum gagnslitlu heiðalöndum í frjósama akra og dýrmæta skóga. Ég er svo lánsamur að mæta einstæðri velvild hjá starfsmönn- um heiðafélagsins, sem gerðu mér kleift að afla þekkingar á sögu þess á skömmum tíma. Fyrsta daginn skoða ég hinn fornfræg3 stað Viborg, en á öðrum degi fæ ég far með einum skógarverði heiðafélagsins, Svend Christensen að nafni. Hann er að fara 1 eftirlitsferð, og á leiðinni segir hann mér frá starfsháttum félagS" Jón Jósep Jóhannesson.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.