Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1953, Side 32

Eimreiðin - 01.07.1953, Side 32
184 STARFSEMI HEIÐAFÉLAGSINS eimreiðin Frá józhu heiöunum. Þar sem áöur voru óslitnar sandauönir, eru nú komin skjólbelti skóganna, sem varna eyöingu af sandfoki. Ríkið veitir styrk til allra stærri framkvæmda í skógrækt, allt að 33% af stofnkostnaði, en slíkir skógar teljast til friðskóga. Til minni framkvæmda er og veittur styrkur. Árið 1860 var aðeins 2,7% Jótlands klætt skógi, en árið 1935 þöktu skógar þess 9% af landinu, þegar Suður-Jótland er ekki reiknað með. Þessar tölur lýsa bezt starfi heiðafélagsins í þágu skógræktar á Jótlandi. Rauðgreni er aðaltrjátegundin, sem ræktuð er, en það óx ekki í Danmörku fyrr en mannshöndin flutti það þangað. Einnig er þar ræktað sitkagreni, þinur, skógarfura og fjallafura, þar sem jarðvegur er slæmur. í skjólbelti er aðallega notaður reyniviður (Sorbus intermedia) og sitkagreni. Mér er ljóst, að þessi stutta umsögn um Heiðafélagið danska er ekki svo ítarleg sem skyldi. Starfsemi þess er svo víðtæk, að

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.