Eimreiðin - 01.07.1953, Síða 56
208
ÞORSTEINN ö. STEPHENSEN
eimreiðin
Þorsteinn Ö. Stephensen sem Njú Þorsteinn ö. Stephensen sem Kranl
prins í „Pi-pa-ki“. kammerráS í „Ævintýri á gönguför“-
lífsframfæris, eins og þá var máhim háttað og er. Gerðist Iiann þvl
starfsmaður Ríkisútvarpsins eftir heimkomuna og aflaði sér þegar 1
stað vinsælda um land allt fyrir flutning frétta og aðra þjónustu í úl'
varpinu, en seinni árin hefur hann verið Ieiklistarráðunautur þess og
umsjónarmaður barnatimans.
Eftir námið í Kaupmannahöfn verða vegamót á Ieiklistarferli Þ«r-
steins. Þá hefur hann gengið leiklistinni á hönd, og veturinn eftir
leikur hann með Leikfélagi Reykjavíkur hlutverk eins og Jeppa 1
„Jeppa á Fjalli“ eftir Holberg, Dag Vestan í „Straumrofi“ eftir Halldór
Kiljan Laxness og Grepeaux listdómara í „Varið yður á málningunni
eftir Fauchois. Þennan vetur starfaði Gunnar R. Hansen með Lcikfélag-
inu, og var það upphaf að hinu gifturíka samstarfi síðari árin. Er
skemmst frá að segja, að Þorsteinn vann hinn glæsilegasta leiksigur
í hlutverki Jeppa á Fjalli, sem hann skilaði heilsteyptu og fullmótuðu
í lifandi samleik við jafn góða leikara og Brynjólf Jóhannesson og
Gunnþórunni Halldórsdóttur, sem léku Jakob og Nillu. Vegna anna 11
öðru sviði lék Þorsteinn frekar lítið næstu árin, var þó upp frá þessu
í trúnaðarstöðum hjá félaginu, lengst af í leikritavalsnefnd og síðastR
árið fyrir endurskipulagningu félagsins formaður þess. Á þessu 1°
ára timabili var það ætíð nokkur viðburður, þegar Þorsteinn kom fraiu
í nýju hlutverki. Af þessum hlutverkum skulu hér aðeins nefnd: PáH
postuli í „Gullna hliðinu“ eftir Davíð Stefánsson, Haraldur Davidsen