Eimreiðin - 01.07.1953, Page 76
228
KYNGLÆPIR
EIMREIÐIN
inga og jafnvel við sjálf börnin. Það eru tillögur, sem munu valda
skjótum og góðum árangri, verði þeim komið í framkvæmd.
1. Liðsmannahópur ætti að vera til í hverju bæjar- og sveitar-
félagi, hópur kvenna og karla, sem berðust óþreytandi baráttu
gegn kynferðislöstum, í hverri mynd sem væri og hversu smá-
vægilegir sem þeir sýndust í fljótu bragði.
I Washington D.C. starfar slíkur liðsmannahópur. f honum eru
40 lögreglumenn; þar af 30 karlar og 10 konur, öll klædd eins
og annað fólk, en ekki í einkennisbúningum. Karlmennirnir hafa
eftirlit með forsölum gistihúsanna, vínkjöllurum, leikhúsum,
drykkjusölum, símaklefum, hressingarskálum, skemmtigörðum og
torgum. Konumar hafa eftirlit með snyrtistofum, bamaleikvöllum
og öðmm stöðum, þar sem kynvillingar eiga hægt með að nálgast
pilta og stúlkur.
Slíkir liðsmannahópar sem þessi geta gert óendanlega mikið
gagn, ef þeir em hæfilega fjölmennir og starfi sínu vaxnir.
í kvikmyndahúsum geta þeir til dæmis (án þess að vekja nokkra
eftirtekt, þar sem þeir eru klæddir eins og hitt fólkið) valið sér
sæti á öftustu bekkjunum og fylgzt þaðan með því, sem fram
fer í öllum salnum. Verði þeir varir við einhverja, sem haga sér
á einhvern hátt grunsamlega eða ósæmilega, er haft vakandi auga
á þeim — og ef framkoma þeirra gefur tilefni til handtöku, eru
þeir umsvifalaust teknir.
2. í hverri borg, hverri sveit og hverju þorpi, ætti að vera til
fullkomin spjaldskrá yfir alla þá, sem gert hafa sig seka um
kynferðisafbrot, og afrit af þeirri skrá ætti að vera til hjá Rann-
sóknarstofnun Sambandsríkjanna í Washington, svo að hún gæti
jafnan haft fullkomna spjaldskrá fyrir allt landið. Ef slíkar
héraðaspjaldskrár væru til í hverju lögsagnarumdæmi, væri hægt
að bera allar kærur saman við þær, fá úr þeim upplýsingar, og
ef þörf þætti, síma til Washington um enn nákvæmari samanburð
þar.
3. Hver einasti þjóðfélagsþegn ætti að telja það borgaralega
skyldu sína að gera réttum yfirvöldum aðvart, ef hann kemst
að sálsýkiskenndu og óeðlilegu framferði í kynferðismálum.
Menn, sem eru á þjófslegum gægjum í kringum hús að nætur-
lagi, — nærklæðaþjófar, sem stela hnjáskjólum og skyrtum af
þvottasnúrum, eru grunsamlegir menn. Það er ófyrirgefanleg
skammsýni að gera ekki réttum yfirvöldum aðvart um framferði
slíkra manna.
Á sama hátt er það skammsýni af foreldrum að dæma allt hug-